Helgafell í fyrstu viðkomu í Halmstad í Svíþjóð

15 október 2026

Helgafell átti sína fyrstu viðkomu hjá Hallands Hamnar í Halmstad í Svíþjóð þann 14. október. Viðkoman markar upphaf nýrrar tengingar í vikulegu siglingakerfi Samskipa milli Íslands, Svíþjóðar og annarra markaða í Evrópu.

Tengingin við Halmstad er liður í stöðugri vinnu okkar við að þróa hagkvæmar og skilvirkar flutningslausnir sem mæta þörfum viðskiptavina. Með því að styrkja flutningsnetið og fjölga valkostum sköpum við fleiri möguleika til að laga flutninga að vöruflæði og þörfum hvers fyrirtækis.

Ávinningur fyrir viðskiptavini:
• Fleiri valkostir í flutningum til og frá Íslandi.
• Sterkari tengingar við sænska og skandinavíska markaði.
• Aukinn sveigjanleiki við val á flutningsleiðum.
• Betra aðgengi að fjölþátta flutningsneti Samskipa í Evrópu.

Við þökkum samstarfsfólki okkar hjá Hallands Hamnar fyrir góðar móttökur og hlökkum til farsæls samstarfs. Meðfylgjandi myndir eru frá fyrstu viðkomu Helgafells í Halmstad

Viltu vita hvernig tengingin getur nýst þínu fyrirtæki? Hafðu samband við okkur.