Tímabundið olíuálag á innanlandsflutninga

21 september 2026

Vegna þróunar á eldsneytiskostnaði munu Samskip innleiða 1,4% tímabundið olíuálag á innanlandsflutninga frá og með 21. september 2026.
Breytingin er liður í því að tryggja að við getum áfram veitt áreiðanlega og öfluga flutningaþjónustu um allt land á þeim forsendum sem markaðsaðstæður krefjast.

Álagið er hóflegt og verður eingöngu lagt á til að mæta hluta af þeim kostnaðarbreytingum sem orðið hafa á eldsneyti.

Tímabundna olíuálagið verður sýnt sem sérstakur liður á reikningum og verður endurskoðað reglulega í samræmi við þróun eldsneytiskostnaðar.

Við leggjum áfram ríka áherslu á hagkvæmar og áreiðanlegar flutningslausnir og þökkum fyrir gott samstarf.

Samskip innanlands.