Samskip ráða Ottó Sigurðsson sem framkvæmdastjóra innflutningssviðs

8 október 2018

Ottó kemur til Samskipa frá VÍS þar sem hann hefur frá 2017 gegnt stöðu forstöðumanns fyrirtækjaþjónustu. Áður starfaði hann hjá Vodafone, meðal annars sem forstöðumaður fyrirtækjasölu.

„Ég er mjög spenntur yfir því að koma aftur til Samskipa enda átti ég góðar stundir þar með góðu fólki. Ég ætla mér að setja alla mína orku í það verkefni sem mér er falið; að veita framúrskarandi þjónustu fyrir okkar viðskiptavini og auka hlutdeild Samskipa á markaði,“ segir Ottó.

Ottó lauk B.Sc. prófi í viðskipafræði frá Louisiana háskóla í Lafayette í Bandaríkjunum árið 2004 og er liðtækur golfari, en á tímabili keppti hann sem atvinnumaður í golfi. Ottó er kvæntur Karen Lilju Sigurbergsdóttur og eiga þau þrjú börn.