Góður starfsandi er okkur mikilvægur.
Jákvætt viðhorf starfsfólks eykur starfsánægju og gleði á vinnustaðnum. Við leggjum áherslu á jákvæð og uppbyggjandi samskipti meðal okkar starfsfólks.

Vinnustaðurinn
Samskip eru kraftmikill og líflegur vinnustaður. Hjá Samskipum á Íslandi starfa um 500 starfsmenn í fjölbreyttum störfum. Við leggjum áherslu á jákvæð og góð samskipti og við berum virðingu fyrir störfum hvers annars. Það er okkur mikilvægt að búnaður á starfsstöðvum okkar sé til fyrirmyndar. Lögð er áhersla á að viðhalda og bæta við þekkingu og hæfni starfsfólks með markvissri endurgjöf, fræðslu og starfsþróun.
Starfsumhverfi og gildi Samskipa
Snyrtilegt, hvetjandi og líflegt starfsumhverfi er okkur mikilvægt. Samskip kappkosta að hafa starfsaðstöðu til fyrirmyndar. Við teljum mjög mikilvægt að okkur líði vel í vinnunni. Við leggjum áherslu á að starfsfólkið okkar hafi gildi félagsins að leiðarljósi í sínum störfum. Gildin okkar eru:
Fræðsla, starfsþróun, öryggi og heilsa
Starfsfólki bjóðast fjölbreyttir möguleikar til fræðslu og starfsþróunar. Við leggjum áherslu á kröftugt fræðslustarf sem nær til alls starfsfólks. Boðið er uppá markvissa og fjölbreytta þjálfun bæði fyrir hópa og einstaklinga. Við leggjum áherslu á að efla hæfni og fagmennsku starfsfólks með því að fjárfesta stöðugt í fræðslu og þjálfun. Starfsþróun er sameiginlegt verkefni starfsmanna og Samskipa.
Hæfni og fagþekking einstaklinga er höfð að leiðarljósi í ráðningum og jafnræðis gætt. Samskip leggja áherslu á markvissa móttöku nýliða samhliða fræðslu og þjálfun.
Við setjum öryggismálin í forgang, sameiginlega berum við ábyrgð á að farið sé eftir ítrustu öryggiskröfum. Vinnuumhverfið okkar fullnægir ávallt kröfum um vinnuvernd, góðan aðbúnað og öruggt starfsumhverfi. Starfsfólk er hvatt til að huga að heilsunni og styðja Samskip við það með reglubundnum heilsufarsskoðunum og margvíslegum heilsufarstengdum áherslum.

Jafnréttisstefna Samskipa og dótturfélaga
Samskip hafa innleitt jafnlaunakerfi og jafnréttisstefnu sem nær til alls starfsfólks fyrirtækisins og dótturfélaga, Samskip innanlands og Jónar Transport á Íslandi. Tilgangurinn er að tryggja jafnrétti og jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækisins og að starfsfólk hafi jöfn tækifæri til að nýta hæfni sína í starfi óháð kyni. Jafnlaunastefna er unnin í samræmi við lög nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna.
Við leggjum áherslu á jafnrétti kynjanna og að allt starfsfólk skulu eiga jafna möguleika til starfa, endurmenntunar og kjara fyrir sambærileg störf. Starfsfólk er metið á eigin forsendum og jafnræðis skal gætt í hvívetna. Við launaákvarðanir er stuðst við starfafylkja og starfaflokkakerfi félagsins sem og skilgreind launaviðmið.
Mannauðsstjóri Samskipa ber ábyrgð á jafnlaunakerfi fyrirtækisins og sér til þess að kerfið sé skjalfest, innleitt og stöðugt uppfært.
Forstjóri og framkvæmdarstjórn fyrirtækisins rýna jafnlaunakerfið árlega og eru skuldbundnir til að tryggja virkni þess.
Reglur um vernd uppljóstrara
Verklag við uppljóstrun starfsfólks um lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi.
Starfsfólki Samskipa er heimilt að greina frá upplýsingum eða miðla gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi fyrirtækisins til aðila innan þess sem stuðlað getur að því að látið verði af eða brugðist við hinni ólögmætu eða ámælisverðu háttsemi eða til lögregluyfirvalda eða annarra opinberra eftirlitsaðila sem við eiga, t.d. umboðsmanns Alþingis, ríkisendurskoðanda og Vinnueftirlitsins.

Hafðu samband

Bára Mjöll Ágústsdóttir
Bára Mjöll Ágústsdóttir
Mannauðsstjóri / Director Human Resorces
Mannauðsstjóri / Director Human Resorces








