Arnarfell í óhappi í Kílarskurði
4 mars 2016
Engan í áhöfn Arnarfells sakaði og allur farmur skipsins er óskemmdur.
Við skoðun á Arnarfellinu kom í ljós að það mun þarfnast viðgerðar og því þarf að losa allan farm frá borði í Aarhus. Verið er að leita leiða til að fá annað skip til að leysa Arnarfellið af hólmi á meðan viðgerð stendur, en ljóst er að tafir verða á siglingaáætlun Samskipa.
Við hvetjum viðskiptavini Samskipa til að fylgjast með fréttum hér á vefnum og á þjónustuvef, þar sem nýjustu upplýsingar verða settar inn um leið og þær liggja fyrir.





