Fjölþátta flutningar með Samskipum

Við veitum áreiðanlega og sveigjanlega flutningsþjónustu. Jafnframt setjum við í forgang að minnka kolefnisfótspor sendinga.

Þegar það er hægt þá veljum við fjölþátta flutningslausnir en það eru vöruflutningar sem nýta mismunandi lausnir eða leiðir til að skapa sjálfbærari og sveigjanlegri aðfangakeðju og stuðla að minna kolefnisfótspori fyrir viðskiptavini okkar. Mismunandi flutningslausnir eru t.d. strandflutningar, prammar, lestir og vöruflutningabílar.

Í hvert skipti sem við getum þá skiptum við út vöruflutningabílum fyrir lestir eða skip. Þannig bjóðum við upp á sérsniðnar, sjálfbærari lausnir til að mæta þörfum viðskiptavina okkar.

Þjónusta Samskipa

Samskip bjóða margþætta þjónustu til viðskiptavina sem spannar allt frá forflutningi erlendis, sjóflutning, hýsingu, skjalagerð og heimaksturs þegar til Íslands er komið. Starfsfólk á innflutningssviði veitir ráðgjöf varðandi alla þætti flutninga til landsins og sérhæfir sig í tilboðs- og samningagerð. Viðskiptavinir okkar hafa jafnframt aðgang að þjónustuvef Samskipa allan sólarhringinn.

Dæmi um vörur sem við flytjum:

  • Fisk afurðir

  • Matvæli, drykkir og þurrvara

  • Bílar, mótorhjól og hjólhýsi

  • Vörur fyrir heildsölu og smásölu

  • Byggingavörur og efni

  • Endurvinnanleg efni í endurvinnslu

  • Vinnuvélar og tæki

  • Búslóðaflutningar

  • Lyfjaflutningar

  • Verðmætaflutningar

  • Heilfarmssendingar og aðrar sérlausnir

Af hverju Samskip?

  • Sérsniðin þjónusta og sveigjanleiki: Við aðlögum flutningslausnir að þörfum viðskiptavina á skilvirkan hátt

  • Áreiðanleiki og reynsla: Traust orðspor, tímanleg og örugg afhending, stutt af áratuga þekkingu og reynslu í greininni

  • Alþjóðleg umfang: Víðtækt flutningsnet býður upp á alhliða þjónustu um alla Evrópu, Norður-Ameríku og Asíu

  • Fjölþættar lausnir: Samþætting vega-, járnbrautar-, sjó- og innlandsflutninga fyrir sveigjanlega og hagkvæma flutninga

  • Sjálfbærni: Skuldbinding til umhverfisvænna flutningsmöguleika, sem draga úr kolefnisspori

  • Nýstárleg tækni: Nýting háþróaðra stafrænna lausna fyrir skilvirkan rekstur, aukinn sýnileika og betri þjónustu

Gámaflutningar

Reynslumiklir sérfræðingar í gámaflutningum um flutningsnet okkar um Evrópu og allan heim, bæði í gegnum Samskip Multimodal í Evrópu sem og með öðrum flutningsleiðum eins og viðskiptavinur hefur þörf á hverju sinni.

Kolefnisfótsporið

Minnkum kolefnisfótspor okkar og viðskiptavina okkar með hagkvæmasta flutningsmátanum hverju sinni. Vinnum markvisst að orkuskiptum, notkun lífeldsneytis, þegar hægt, og að lausnum sem hjálpa okkur og viðskiptavinum að ná loftslagsmarkmiðum.

Áreiðanleg þjónusta

Með reglulegum flutningsleiðum á sjó og á landi, tryggjum við með flutningsneti okkar um Evrópu, hagkvæmar lausnir fyrir viðskiptavini með áreiðanlegri og sveigjanlegri þjónustu. Fylgst er með sendingum og tryggð áreiðanleg og skilvirk þjónusta.

Persónuleg þjónusta

Góð og persónuleg þjónustu byggð á áralangri reynslu og sérþekkingu starfsfólks. Hjá okkur fá viðskiptavinir sinn tengilið sem fylgir sendingum alla leið. Við hlustum, finnum hagkvæmar og skjótar lausnir og tryggjum áreiðanleika og upplýsingagjöf á leiðinni.

Gámaflutningar

Við erum reynslumiklir sérfræðingar í gámaflutningum um flutningsnet okkar um Evrópu og allan heim, bæði í gegnum Samskip Multimodal í Evrópu sem og með öðrum flutningsleiðum eins og viðskiptavinur hefur þörf á hverju sinni.

Kolefnisfótsporið

Við minnkum kolefnisfótspor okkar og viðskiptavina okkar með hagkvæmasta flutningsmátanum hverju sinni. Vinnum markvisst að orkuskiptum, notkun lífeldsneytis, þegar hægt, og að lausnum sem hjálpa okkur og viðskiptavinum að ná loftslagsmarkmiðum.

Áreiðanleg þjónusta

Með reglulegum flutningsleiðum á sjó og á landi, tryggjum við með flutningsneti okkar um Evrópu, hagkvæmar lausnir fyrir viðskiptavini með áreiðanlegri og sveigjanlegri þjónustu. Fylgst er með sendingum og tryggjum áreiðanlega og skilvirka þjónustu.

Persónuleg þjónusta

Við veitum góða og persónulega þjónustu byggða á áralangri reynslu og sérþekkingu starfs-fólks. Hjá okkur fá viðskiptavinir sinn tengilið sem fylgir sendingum alla leið. Við hlustum, finnum hagkvæmar og skjótar lausnir og tryggjum áreiðanleika og upplýsingagjöf á leiðinni.

Heildarlausnir í flutningum, frá upphafi til enda

Við stefnum að persónulegri nálgun gagnvart viðskiptavinum okkar. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli þekkingu á flutningum, hvort sem það er viðkvæmur farmur og tilskild fylgiskjöl og þá stefnum við á heildarlausn í þjónustu (e. one-stop shop).

Á hverjum degi sér teymið okkar um sendingar viðskiptavina og aðstoðar jafnframt með ráðgjöf um hvernig best er að yfirstíga ýmis konar áskoranir í aðfangakeðjunni. Hvaða leið sem er þá skila Samskip vörum frá upphafi til enda á sem snjallastan og hagkvæmastan hátt.

Flutningsnet okkar sameinar náið samstarf við lykilflutningsaðila og okkar eigin víðtæku innviði; hvort sem um er að ræða skip í eigu Samskipa, gáma, kæligeymslur eða flutningabíla tryggir fjölbreytt þjónustuframboð að við finnum réttu flutningslausnina.

Samsetning flutningsmáta

Skipti á flutningsmáta (e. Modal Shift) þýðir breyting á flutningsmáta eða lausn úr einni tegund flutnings yfir í aðra. Flutningurinn getur tekið á sig mismunandi form, svo sem:

  • Úr vegaflutningum yfir í járnbrautir

  • Úr vegaflutningum yfir í vatnaleiðir

Ásamt ávinningi fyrir umhverfið þá draga slík skipti úr losun koltvísýrings, en einnig draga þau úr slysatíðni sem eru líklegri til að gerast þegar notaðar eru vegasamgöngur.

Áreiðanleiki er annar ávinningur sem verður við skipti á flutningsmáta. Vegasamgöngur geta oft verið háðar umferðartöfum en járnbrautir og skip bjóða upp á áreiðanlegri og fyrirsjáanlegri áætlanir.

Í dag er markmið þessara skipta að ná fram hagkvæmni til lengri tíma með því að fjárfesta í sjálfbærum samgöngumáta.

Viðkvæmur farmur alla leið

Við höfum mikla reynslu af hitastýrðum flutningum og sinnum viðkvæmum vörum af öryggi og nákvæmni alla leið. Við bjóðum upp á lausnir fyrir vörur sem krefjast stöðugs hitaumhverfis og sérmeðhöndlunar.

Við sérhæfum okkur meðal annars í flutningi á:

  • Matvælum (ávextir, grænmeti og ferskvara, vörur með stuttan líftíma)
  • Lyfjum (vottanir fyrir örugga flutninga og hitastýrða geymslu)

  • Hættulegum efnum og varningi (ADR sérleyfi og þjálfað starfsfólk)


Með hitastýringu, rekjanleika í rauntíma og sérfræðingum okkar sem fylgja ferlinu eftir tryggjum við að viðkæmur farmur berist á réttum tíma og í réttu ástandi, í hvert skipti.

Eitt stærsta siglinganet Evrópu

Sjálfbærar og fjölþátta flutningslausnir

Samskip bjóða upp á heildarþjónustu á Íslandi og í Færeyjum, fjölþátta gámaflutningaþjónustu um alla Evrópu, frystiflutninga og flutningsmiðlun um allan heim. Kynntu þér flutningsnetið okkar og siglingaáætlanir.