Fullkomnar kæli- og frystigeymslur í Ísheimum
Í Ísheimum reka Samskip tæknivæddar kæli- og frystigeymslur fyrir bæði minni og stærri farma. Geymslurnar eru hannaðar fyrir frystar afurðir, með bæði rekkakerfum og frístöflun, og taka samtals allt að 6.500 tonn / 6.500 palla. Aðstaðan hentar jafnt reglubundnum sendingum sem heilförmum.
Sveigjanleg afgreiðsla og mikil afkastageta.
Í Ísheimum er öflug afgreiðsluaðstaða sem tryggir skilvirka móttöku og útkeyrslu. Hægt er að afgreiða allt að 10 gáma eða flutningabíla samtímis, auk þess sem boðið er upp á fjölda gámatengla fyrir geymslu í kæli- og frystigámum. Afgreiðslurými er samtals 1.000 m², með 500 m² þjónusturými fyrir sýnatöku, skoðun og sérþjónustu.
Ísheimar í Kjalarvogi á hafnarbakkanum við Vogabakka:

Löndun
Togaralöndun beint inni í geymsluna, því hluti hennar er í sömu hæð og bryggjan.
Sérhæfð þjónusta
Heildarþjónusta við frysti- og fjölveiðiskip. Öll bretti eru vigtuð, plöstuð og strikamerkt.
Rafræn skráning
Öll móttaka og afhending er skráð rafrænt um leið og vara fer inn og út úr vöruhóteli.
Tollsvæði
Ísheimar eru með tollsvæði fyrir geymslu á vörum og er afgirt og vaktað allan sólarhringinn.
Gæði, eftirlit og öryggi
Í Ísheimum eru sérútbúin skoðunarherbergi fyrir gæðaeftirlit og aðstaða fyrir ytra landamæraeftirlit með matvælum á Evrópska efnahagssvæðinu. Svæðið er afgirt og vaktað allan sólarhringinn og starfar jafnframt sem tollsvæði, sem veitir aukinn sveigjanleika við innflutning og afgreiðslu.


Kæli- og frystigámar
Samskip bjóða upp á alla þjónustu fyrir kæli- og frystigáma, bæði geymslu á tenglum sem og alla aðra umsýslu eftir þörfum. Í bland við langtímageymslu í Ísheimum eru ýmsar aðrar lausnir í boði og hægt er að afgreiða gáma að hluta eða heild til viðskiptavina eftir þörfum.
Hafðu samband við okkur fyrir frekari fyrirspurnir varðandi kæli- og frystigáma og þjónustu tengda þeim eins og afgreiðslu og aðra vörumóttöku.
Sérþekking í sjávarafurðum og lausnir
Samskip búa yfir áralangri sérþekkingu í meðhöndlun og flutningum sjávarafurða. Við bjóðum sérsniðnar lausnir fyrir frysti- og fjölveiðiskip, hitastýrða geymslu og samþættingu við áframhaldandi flutninga innanlands og til útlanda. Með öflugu alþjóðlegu neti tryggjum við að afurðir haldi gæðum sínum frá móttöku til afhendingar.







