Akrafell á leið til Reyðarfjarðar

Akrafell, flutningaskip félagsins sem strandaði við Vattarnes í liðinni
viku, hefur verið bundið við bryggju á Eskifirði undanfarna daga.

Akrafell, flutningaskip félagsins sem strandaði við Vattarnes í liðinni viku, hefur verið bundið við bryggju á Eskifirði undanfarna daga þar sem unnið hefur verið við að þétta skipið og koma í veg fyrir frekara tjón og fyrirbyggja mengun.
Dæling úr skipinu gengur vel og tæknimenn vinna að því lágmarka tjón í vélarrúmi.
Áætlað er að flytja skipið að Mjóeyri við Reyðarfjörð þar sem farmurinn verður losaður. Gert er ráð fyrir að losun farms hefjist á morgun laugardag.  Undirbúningur og framkvæmd á flutningi  skipsins er unnin í samráði við hlutaðeigandi aðila.
Dráttarbátur frá Höfn í Hornafirði, Björn Lóðs  og Björgunarskipið Vöttur munu aðstoða við flutning á Akrafellinu frá Eskifirði til Reyðarfjarðar.