Breytingar Samskipa gefið góða raun

Ráðist var í umfangsmiklar breytingar á siglingakerfi Samskipa síðastliðið haust og hafa þær gefið góða raun. 

Felast breytingarnar meðal annars í því að bætt var við einu skipi, tveimur skipum skipt út fyrir stærri skip og loks var siglingakerfið endurskipulagt. 

Tvær leiðir, Suðurleið (Skálafell og Bláfell) og Norðurleið (Arnarfell og Helgafell), sigla nú til Bretlands og meginlands Evrópu, en viðkomum í völdum höfnum hér á landi var einnig fjölgað með Strand- og Suðurleiðinni, en Strandleiðin fer líka til Færeyja og siglir þaðan til Reykjavíkur þar sem vörunni er umskipað áfram til Evrópu.

Byrjað að losa á sunnudögum
Árangurinn er sá að áætlun skipanna síðustu þrjá mánuði á Suður- og Norðurleið hefur 0811795819verið 100% á tímaáætlun til Reykjavíkur, samkvæmt upplýsingum frá Samskipum. „Suðurleiðin bætir tenginguna fyrir innflutningsaðila frá Rotterdam og Bretlandi til Íslands,“ segir Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, markaðsstjóri Samskipa á Íslandi, og bendir á að með tilkomu nýs leiðakerfis hafi tekist að afhenda vörur mun fyrr en áður. „Vörur á Suðurleiðinni, það er með Skálafelli og Bláfelli, eru afhentar á mánudögum. Byrjað er að vinna við losun klukkan 16.00 á sunnudögum sem flýtir allri afgreiðslu á vöru á mánudögum og skilar sér í stórbættri þjónustu til viðskiptavina.“ 

Svara kalli markaðarins 
Með breyttum brottfarardögum í útflutningi sé tryggð afhending inn á markaði í Bretlandi og á meginlandi Evrópu á sunnudögum og mánudögum, sem skili sér í bættri þjónustu við útflytjendur á ferskum fiski. Hún segir öruggar og hagkvæmar flutningaleiðir skipta höfuðmáli og að fyrirtækið bjóði áfram þjónustu í hæsta gæðaflokki. „Samskip hafa meðal annars ráðist í endurnýjun á siglingakerfinu til að auka áreiðanleika í flutningunum og til að svara kalli markaðarins vegna aukinna ferskfiskflutninga síðustu misseri og ár. 

Með breyttu leiðakerfi eru Samskip kjörinn kostur í þessa flutninga, enda sjóflutningar hagkvæmari á margan hátt, bæði í samanburði við flug og eins til að létta álagi af flutningum innanlands þar sem það á við.“ 

Birtist í Morgunblaðinu 8. febrúar 2019