Frábærir dagar á Seafood Expo Global í Barcelona!

Það var ótrúlega spennandi að vera á meðal þeirra rúmlega 2.100 fyrirtækja frá 87 löndum sem komu saman á Seafood Expo Global – stærstu sjávarútvegssýningu heims í Barcelona í byrjun maí. Þar áttum við hin ýmsu samtöl um nýjustu strauma í sjávarútvegnum, nýsköpun og lausnir við þeim áskorunum sem greinin stendur frammi fyrir.

Við þökkum öllum þeim fjölmörgu gestum sem heimsóttu básinn okkar og það var okkur sönn ánægja að hitta viðskiptavini og aðra áhugasama nýja tengiliði í sjávarútvegnum. Það var virkilega gaman að ræða saman, deila lausnum og sjá hversu mikill áhugi er á framtíð sjálfbærrar og skilvirkrar dreifingar sjávarafurða. En sýningin er mikilvægur vettvangur til að deila þekkingu, mynda tengsl og horfa til framtíðar.

"Fyrir okkur hjá Samskipum er þátttaka á sýningunni mikilvæg – ekki bara til að hitta okkar viðskiptavini, heldur líka til að sýna fram á það sem við stöndum fyrir: áreiðanleika, sjálfbærar lausnir og alþjóðlegt tengslanet sem styður við flutninga sjávarafurða út um allan heim. Þannig að við segjum bara takk fyrir samtölin, tengingarnar og innblásturinn – við hlökkum til framhaldsins og næsta árs" segir Ágústa Hrund Steinarsdóttir forstöðumaður markaðs og samskiptadeildar Samskipa.

Þorkell Kristinsson sölustjóri útflutnings segir okkur hér frá því gríðarstóra kerfi sem Samskip reka í Evrópu og mikilvægi þess að geta boðið upp á flutning með Samskipum, alla leið!