Sidewind gámar

Íslensk vindorka um borð í Helgafelli: Vind- og sólarorkugámar WHISPER komnir í sjóprófanir

28 ágúst 2026

Tveir vindmyllugámar íslenska tæknifyrirtækisins SideWind eru komnir til landsins með Helgafelli, gámaskipi Samskipa. Gámarnir eru hluti af samþættu vind- og sólarorkukerfi evrópska nýsköpunarverkefnisins WHISPER sem nú verður prófað við raunverulegar rekstraraðstæður á hafi úti.

Gámarnir með búnaðinum voru settir um borð í Helgafell í Árósum í Danmörku og hófust sjóprófanir strax að uppsetningu lokinni. Skipið sigldi yfir hafið til Íslands og kom til landsins 24. ágúst með vindmyllugámana um borð. Prófanirnar gera samstarfsaðilum WHISPER kleift að meta virkni hins samþætta vind- og sólarorkukerfis við raunverulegar aðstæður en markmið þess er að draga úr losun frá hjálparvélum skipsins. Láréttir vindhverflar SideWind eru byggðir inn í sérútbúna gáma með sólarsellum frá Solbian á þökunum. Lausnina má setja um borð í skip sem þegar eru í rekstri (e. retrofit) og þannig nýta tiltækt rými á þilfari til orkuframleiðslu með lágmarksbreytingum á skipinu sjálfu.

Sjá drónamyndband frá komu SideWind-gámanna til landsins.

Hliðarvindurinn nýttur til raforkuframleiðslu
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið SideWind þróar vindtúrbínur sem nýta þann hliðarvind sem myndast við siglingu skipa til raforkuframleiðslu. Markmiðið er að umbreyta orku sem annars færi ónotuð til spillis í hreina raforku um borð.
Lausnin byggir á endurnýtingu 40 feta gáma sem ekki eru lengur hæfir til hefðbundinna vöruflutninga. Hliðar gámanna eru fjarlægðar og láréttum vindhverflum komið fyrir inni í þeim ásamt rafölum. Gámarnir eru síðan staðsettir um borð í skipi þar sem hliðarvindurinn knýr hverflana og framleiðir rafmagn.

Sérhannaðar sólarsellur frá ítalska fyrirtækinu Solbian þekja jafnframt þök SideWind-gámanna. Þær eru lagaðar að lögun gámanna og hannaðar til að standast krefjandi aðstæður á sjó. Meðan á prófununum stendur framleiða sólarsellurnar rafmagn samhliða vindhverflunum og mynda þannig samþætta vind- og sólarorkulausn WHISPER. Hægt er að koma gámunum fyrir á skipum sem þegar eru í rekstri og nýta þannig tiltækt rými á þilfari til orkuframleiðslu án þess að gera þurfi umfangsmiklar breytingar á skipunum sjálfum. Raforkuna væri meðal annars hægt að nýta til að knýja kæli- og frystigáma um borð.

Mikilvægur áfangi fyrir SideWind
„Þetta er stór stund fyrir okkur, að vera loks farin að prófa tækni SideWind við raunaðstæður. Sjóprófanirnar munu skila okkur verðmætum gögnum úr raunverulegum rekstri um virkni, stýringu og afköst kerfisins, auk þess sem við fáum færi tækifæri á að fínstilla tæknina og sníða af henni vankanta. Þetta er mikilvægt skref í þróun lausnarinnar svo hægt sé að aðlaga hana og setja um borð í skip sem þegar eru í rekstri,“ segir Óskar Svavarsson, framkvæmdastjóri SideWind.

Samskip leggja til þekkingu úr skiparekstri
Samskip hafa tekið þátt í þróunarverkefninu með SideWind og lagt til þekkingu og reynslu úr skiparekstri og vöruflutningum. Samstarfið felur meðal annars í sér prófanir á tækninni og mat á því hvernig hún geti nýst við raunverulegar aðstæður á hafi úti. Sjóprófanirnar fara fram í fjórum áætlunarferðum á næstu þremur mánuðum.

„Uppsetning WHISPER-kerfisins um borð í Helgafelli er mikilvægt skref frá tækniþróun yfir í raunprófanir í rekstri. Sjóprófanirnar munu veita okkur mikilvæga innsýn í hvernig einingaskipt vind- og sólarorkugámar geta stuðlað að umhverfisvænni siglingum án þess að slakað sé á öryggi, áreiðanleika eða þeim gæðum sem viðskiptavinir okkar og áhafnir gera kröfu um,“ segir Guðmundur Óskarsson, forstöðumaður flutningadeildar Samskipa. Verkefnið fellur vel að umhverfis- og sjálfbærnimarkmiðum Samskipa, enda gæti tæknin dregið úr notkun jarðefnaeldsneytis og þar með minnkað losun frá flutningaskipum. Verkefnið er gott dæmi um hvernig samstarf rótgróins flutningafyrirtækis og íslensks nýsköpunarfyrirtækis getur stuðlað að þróun nýrra lausna fyrir sjálfbærari sjóflutninga.

„Verkefni á borð við WHISPER eru mikilvægur þáttur í orkuskiptum í siglingum. Þar eru þróaðar sveigjanlegar einingalausnir sem hægt er að setja í skip sem þegar eru í rekstri og nýta þannig endurnýjanlega orku sem er til staðar á hafi úti. Slíkar lausnir eru öflug viðbót við þá mikilvægu þróun sem þegar á sér stað í höfnum,“ segir Carine Chatenay, byggingaverkfræðingur hjá Verkís og verkefnastjóri WHISPER. Sérhannaðar sólarsellur frá ítalska fyrirtækinu Solbian falla vel að þökum SideWind-gámanna og eru gerðar til að standast krefjandi aðstæður á sjó. Meðan á prófununum stendur framleiða sólarsellurnar rafmagn samhliða vindhverflunum og mynda þannig hina samþættu vind- og sólarorkulausn WHISPER.

„Orkuskipti í siglingum krefjast tæknilausna sem geta unnið saman og hægt er að koma fyrir um borð í skipum sem þegar eru í rekstri. Með því að sníða sólarsellurnar að gámum SideWind nýtum við tiltækt yfirborð til hreinnar raforkuframleiðslu um borð. Sjóprófanirnar eru mikilvægt tækifæri til að sannreyna þessa samþættu nálgun við raunverulegar rekstraraðstæður,“ segir Luca Bonci, framkvæmdastjóri Solbian.

Sjóprófanirnar á Helgafelli eru hluti af umfangsmikilli prófunaráætlun WHISPER á tæknilausnum í raunstærð. Fyrr í ágúst hófust einnig sjóprófanir um borð í Maria Topic, Ultramax-magnflutningaskipi Ant. TOPIC. Þar hafa verið sett upp stíf, hallanleg vængsegl OceanWings ásamt sólarsellum Solbian. Vængseglunum er ætlað að nýta vind til að aðstoða við að knýja skipið áfram og draga þannig úr aflþörf aðalvélar. Samstarfsaðilar WHISPER munu kynna fyrstu niðurstöður og reynslu af sjóprófunum á SMM sýningunni í Hamborg í september 2026. Gögnum verður áfram safnað og þau greind meðan á sjóprófununum stendur áður en staðfestar niðurstöður verkefnisins verða birtar.

Um WHISPER verkefnið
Markmið WHISPER er að þróa að fullu einingaskiptar tæknilausnir til ísetningar í gámaskip og magnflutningaskip sem þegar eru í rekstri. Lausnunum er ætlað að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá alþjóðlega kaupskipaflotanum.
Verkefnið hófst 1. janúar 2023 og stendur til 31. desember 2026. Í verkefninu eru þróaðar og prófaðar þrjár megintæknilausnir: Vængsegl OceanWings, sólarsellur Solbian og láréttir vindhverflar í gámum frá SideWind.
Stirling Design International vinnur jafnframt að hugmyndhæahönnun (e. concept design) fyrir ný skip sem nýta tæknilausnir WHISPER, sjá myndband af því hér.

Samstarfsaðilar WHISPER eru Verkís, SideWind, OceanWings, Solbian, CANOE, Ant. Topic, Dotcom, Samskip/Nav-Tech, Stirling Design International, BBA//Fjeldco, Lloyd’s Register, Athygli og Inspiralia.