Samskip hefja vikulegar siglingar til Halmstad í Svíþjóð

26 maí 2026

– Ný tenging styrkir flutningsleiðir til og frá Íslandi

Í september 2026 hefja Samskip vikulegar siglingar til Hallands Hamnar í Halmstad í Svíþjóð. Með samstarfinu verður Halmstad hluti af einni mikilvægustu flutningsleið Íslands á sama tíma og staða hafnarinnar styrkist enn frekar sem vaxandi fjölþáttaflutningamiðstöð (e. intermodal hub) á Norðurlöndum.

Fyrir viðskiptavini Samskipa þýðir þetta aukið val um flutningsleiðir, betri tengingar inn á Norðurlönd og Evrópu og enn sveigjanlegra flutningsnet til og frá Íslandi.

Aukinn sveigjanleiki og sterkara flutningsnet
Helsti ávinningur fyrir viðskiptavini Samskipa felst meðal annars í:
  • Auknum og betri tengingum við sænska og skandinavíska markaði

Skipin Arnarfell og Helgafell munu sinna vikulegri þjónustu til Halmstad og gert er ráð fyrir að um 250 gámar fari vikulega í gegnum þjónustuna. Fluttar verða meðal annars matvörur, byggingarefni og ökutæki til Íslands ásamt fiski og sjávarafurðum frá Íslandi til Skandinavíu.

Stefnumótandi samstarf fyrir bæði fyrirtæki
Þetta samstarf er mikilvægt og stefnumótandi fyrir Hallands Hamnar. Með því styrkjum við stöðu okkar í gámaflutningum og nýtum innviði okkar betur. Mikil uppbygging innviða á undanförnum árum, þar á meðal fjölþáttaflutningamiðstöð og gott aðgengi að flutningsleiðum, hefur gert okkur kleift að bjóða Samskipum öflugan og samkeppnishæfan valkost á markaðnum,“ segir Henrik Nanfeldt, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Hallands Hamnar.
Hann bætir við að Samskip séu meira en hefðbundið gámaflutningafyrirtæki: „Með því að tengja saman sjó-, lestar- og vegaflutninga innan evrópsks fjölflutninganets skapast aukið virði í allri virðiskeðju viðskiptavina.

Mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu
Tengingin við Halmstad styrkir flutningsnet Samskipa enn frekar og skapar viðskiptavinum aukinn sveigjanleika og fleiri valkosti inn á Norðurlöndin. Fyrir okkur snýst þetta ekki aðeins um nýja höfn heldur um bætt aðgengi, aukið rekstraröryggi og skilvirkara vöruflæði til og frá Íslandi. Þetta er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu á öflugu neti Samskipa,“ segir Birkir Hólm, forstjóri Samskipa.

Þjónustan í stuttu máli
  • Siglingar hefjast til Halmstad í september 2026
  • Ein sigling á viku
  • Arnarfell og Helgafell sinna þjónustunni
  • Áætlað magn er um 250 gámar á viku
Samskip munu á næstunni vinna náið með viðskiptavinum að innleiðingu þjónustunnar og veita frekari upplýsingar um siglingaráætlanir, tengingar og þá möguleika sem þjónustan skapar.
Með þessari nýju tengingu styrkja Samskip enn frekar þjónustu sína til og frá Íslandi og byggja áfram upp öflugt og áreiðanlegt flutningsnet fyrir viðskiptavini sína.