Þjónustan á bakvið flutningana

29 apríl 2026

Þjónustudeild Samskipa er rödd fólksins á bak við flutningana og leggur áherslu á persónulega og lausnamiðaða þjónustu, með það að markmiði að tryggja jákvæða og trausta upplifun fyrir viðskiptavini. Bak við þjónustuna stendur öflugt og reynslumikið teymi með sterka liðsheild.

Björn S. Stefánsson, þjónustufulltrúi og starfsmaður Samskipa í 24 ár, situr fyrir svörum.

👉 Hvað eru viðskiptavinir okkar oftast að spyrja okkur um?

„Hvar er sendingin mín?“
Þetta er langalgengasta spurningin sem við fáum. Ef viðskiptavinur er með aðgang að þjónustuvef Samskipa getur hann fylgst með stöðu sendingarinnar í rauntíma. Þar má sjá allar helstu upplýsingar um hvar sendingin er stödd og hvað er næst á dagskrá.

„Hvenær sigla skip Samskipa – hvar finn ég siglingaáætlunina?“
Siglingaáætlanir Samskipa eru alltaf aðgengilegar á vef Samskipa, Siglingaáætlun – Samskip .Þar má sjá áætlaðar ferðir, komur og brottfarir. Gott er þó að hafa í huga að áætlanir geta tekið breytingum og því mælum við með að fylgjast reglulega með uppfærslum.

„Get ég fengið aðstoð við afhendingu eða heimakstur?“
Já, að sjálfsögðu. Við aðstoðum við skipulagningu afhendinga og heimakstur eftir að sending hefur komið til landsins og finnum lausn sem hentar hverjum og einum.

„Hvernig get ég greitt fyrir sendinguna mína?“
Við bjóðum upp á mismunandi greiðsluleiðir og aðstoðum viðskiptavini við að finna þá leið sem hentar best hverju sinni. Það er alltaf í lagi að hafa samband ef eitthvað er óljóst varðandi greiðslur.

„Get ég breytt sendingu, til dæmis afhendingarstað?“
Í mörgum tilvikum er hægt að gera breytingar á sendingum, til dæmis breyta afhendingarstað eða óska eftir sérlausnum. Það sem skiptir mestu máli er að hafa samband sem fyrst, þannig að við getum skoðað hvaða möguleikar eru í stöðunni.

„Bjóða Samskip upp á aðstoð við tollafgreiðslu?“
Já, við bjóðum upp á aðstoð við tollafgreiðslu og leiðbeinum viðskiptavinum í gegnum ferlið og þau skjöl sem þarf. Markmiðið er að gera ferlið eins einfalt og mögulegt er.

„Mig vantar tilboð í flutning – hvar byrja ég?“
Við fáum reglulega almennar fyrirspurnir um verð og möguleika í flutningum. Til að við getum aðstoðað sem best er fyrsta skrefið alltaf að fylla út ósk um tilboð á vef Samskipa. Þar setur þú inn helstu upplýsingar um flutninginn og þá fer beiðnin strax í rétt ferli.

Ósk um tilboð í innflutning:
Hægt er að óska eftir tilboði á vefnum okkar á: samskip.is/tilbod-innflutningur
Þegar tilboðsbeiðnin liggur fyrir hefur söluteymið okkar samband með verð, ráðgjöf og leiðbeiningar um næstu skref.

„Ég er að flytja búslóð – hvar byrja ég?“
Við aðstoðum reglulega fólk með búslóðarflutninga og fylgjum viðskiptavinum í gegnum allt ferlið, bæði þegar flutt er til Íslands og frá landinu. Við veitum ráðgjöf, gerum tilboð og hjálpum við skipulagningu flutningsins frá upphafi til enda.
Fyrsta skrefið er alltaf að fylla út ósk um tilboð á samskip.is, þar sem þú setur inn helstu upplýsingar um flutninginn. Þá getum við haft samband og leiðbeint þér áfram.

Óska eftir tilboði í búslóðarflutning:

„Mig langar að vinna hjá Samskipum – hvernig sæki ég um?“
Við fáum reglulega fyrirspurnir af þessu tagi og það gleður okkur alltaf þegar fólk sýnir áhuga á að ganga til liðs við frábæra Samskipateymið okkar. Við tökum þó ekki við starfsumsóknum í gegnum tölvupóst. Allar lausar stöður og umsóknir fara í gegnum ráðningarvef Samskipa.

Sækja um starf:
Um öll störf er sótt um á atvinnu umsóknarsíðu Samskipa: jobs.50skills.com/samskip/is

Lokaorð Bjössa:

„Ef þú finnur ekki svarið við spurningunni þinni hér, hvet ég þig til að hafa samband – við erum alltaf til í að hjálpa.“
Björn S. Stefánsson, Samskip