Ný siglingaáætlun Skaftafells og Hoffells

Breytingar hafa verið ákveðnar á siglingaáætlun Skaftafells og Hoffells sem taka gildi frá og með viku 24 og viku 25:

· Skaftafell siglir frá viku 24 (2524SKF) og áfram: REY-ISA-SAU-AKU-IMM-RTM-REY
· Hoffell siglir frá viku 25 (2525HOF) og áfram: REY-IMM-RTM-REY

Þessi áætlun gildir þar til annað er ákveðið, það er þetta er ný aðalsiglingaáætlun fyrir þessi tvö skip. Þetta þýðir að strandsiglingar verða á tveggja vikna fresti hér eftir.

Athugið að Hoffell leggur úr höfn frá Reykjavík á þriðjudagskvöldum, á leið til Immingham og Rotterdam, en Skaftafell leggur úr höfn frá Reykjavík á mánudagskvöldum eins og áður.

Vegna þjóðhátíðardagsins 17. júní gildir fyrir Hoffel í ferð 2525HOF að lestun verður lokið síðdegis mánudaginn 16. júní. Fyrir ferðir 2527HOF og áfram verður lokunartími heilgáma klukkan 12:00 á mánudögum. Lokunartími Skaftafells er óbreyttur aðrar vikur.

Við bendum viðskiptavinum á að fylgjast vel með sínum sendingum inn á þjónustuvef Samskipa.
Ef aðstoð þarf varðandi aðgang að þjónustuvef Samskipa er hægt að hafa samband á netfanginu: customer.service@samskip.com