Nýr framkvæmdastjóri innanlandssviðs Samskipa

Það er okkur sönn ánægja að kynna Jón Inga Þrastarson, nýjan framkvæmdastjóra innanlandssviðs hjá Samskipum. Jón Ingi hefur verið hluti af Samskipum frá árinu 2013 og þekkir fyrirtækið og viðskiptavinina út og inn – hvort sem það er úr sölunni, þjónustunni eða sem miklu máli skiptir, alþjóðlegu umhverfi.
Jón Ingi er uppalinn á Akranesi en ævintýraandinn hefur alltaf togað í hann – hvort sem það var í skiptinám til Shanghai, flutningar til Rotterdam eða motocrossæfingar á unglingsárum. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri Iceland service í Hollandi hjá Samskipum og nú síðast sem Director of Global Forwarding áður en hann tók við nýju hlutverki á Íslandi.
Utan vinnu er hann þriggja barna faðir, áhugasamur veiðimaður og gítarleikari sem lærði að spila á gítar í COVID, því eins og hann segir sjálfur: „Það þarf jafnvægi og það er ekkert betra en að hreinsa hugann með hreyfingu og tónlist“.
Jón Ingi er með Executive MBA frá Rotterdam School of Management og brennur fyrir því að byggja upp sterkt innanlandskerfi Samskipa sem þjónar viðskiptavinum enn betur með skýrri framtíðarsýn, auknu þjónustustigi og sterkari tengingu við alþjóðlegar lausnir fyrirtækisins.
Við bjóðum Jón Inga hjartanlega velkominn í nýtt hlutverk og hlökkum til að vinna með honum að því að efla innanlandsflutninga framtíðarinnar.