Óvíst hvenær viðgerð á Horst B lýkur
Horst B, leiguskip Samskipa, er komið til Reykjavíkur. Eins og greint var frá í gærmorgun kom upp vélarbilun og seinkaði komu skipsins til Reykjavíkur vegna þessa og slæms veðurs.
Viðgerð á skipinu stendur yfir, en ekki liggur fyrir hvenær henni lýkur. Óvissa ríkir því um brottför skipsins frá Reykjavík.