Saman inn í nýtt ár – traust samstarf, skýr framtíðarsýn og sameiginlegur árangur

28 janúar 2026

Kæru viðskiptavinir,

Nýtt ár er framundan, 2026, með nýjum tækifærum, áskorunum og sameiginlegum markmiðum. Þegar við lítum yfir liðið ár vil ég þó fyrst og fremst þakka viðskiptavinum traustið og gott samstarf á árinu sem er að baki. Án þess væri starfsemi okkar ekki möguleg.
Flutningageirinn er í stöðugri þróun og síðustu ár hafa einkennst af miklum breytingum, auknum kröfum og nýjum tækifærum. Í slíku umhverfi skipta traust samstarf og skýr samskipti meira máli en nokkru sinni fyrr.

Hjá Samskipum erum við sannfærð um að árangur byggist á nánu samstarfi. Flutningar og þjónusta snúast ekki eingöngu um kerfi, leiðir og tímasetningar, heldur um fólk, samskipti og gagnkvæmt traust. Í samstarfinu við viðskiptavini hlustum við og lærum, bætum okkur og þróum lausnir sem skipta raunverulegu máli fyrir daglegan rekstur.

Þess vegna sendum við reglulega frá okkur upplýsingar til viðskiptavina – og biðjum jafnframt reglulega um þeirra álit.
Markmið okkar er ekki aðeins að miðla fréttum frá okkur, heldur að eiga virkt og gagnkvæmt samtal. Við viljum halda viðskiptavinum upplýstum um það sem er að gerast hjá okkur, hvert við stefnum og hvaða breytingar, tækifæri og lausnir geta haft áhrif á þeirra rekstur. Á sama tíma framkvæmum við reglulegar púlskannanir til að hlusta á upplifun, væntingar og ábendingar viðskiptavina. Þannig tryggjum við að upplýsingaflæðið sé ekki einhliða, heldur samtal þar sem við fáum skýra mynd af því sem vel er gert – og því sem við getum gert betur. Þetta er lykilforsenda þess að við þróum þjónustu í takt við raunverulegar þarfir.

Við leggjum ríka áherslu á að vera áreiðanlegur og framsækinn samstarfsaðili, hvort sem um er að ræða flutninga á sjó, landi eða í lofti, eða heildrænar lausnir sem tengja alla virðiskeðjuna saman. Markmið okkar er ávallt það sama: að styðja við rekstur viðskiptavina okkar með skilvirkum, öruggum og sjálfbærum lausnum.

Kjarni þessa samstarfs er sterkt og reynslumikið starfsfólk. Hjá Samskipum starfar hópur fólks sem er í daglegum og nánum samskiptum við viðskiptavini okkar. Þar liggur að baki áratuga sérþekking og reynsla sem nýtist til að skilja þarfir, bregðast hratt við og finna lausnir í flóknu og síbreytilegu rekstrarumhverfi. Þessi mannlegi þáttur er lykillinn að þeirri þjónustu sem við leggjum metnað í að veita á hverjum degi.

Á árinu sem er að hefjast leggjum við sérstaka áherslu á:

  • að vera áreiðanlegur, sveigjanlegur og lausnamiðaður samstarfsaðili
  • að einfalda ferla og bæta upplifun viðskiptavina
  • að hlusta enn betur á viðskiptavini

Flutningar eru lykilþáttur í virðiskeðju fyrirtækja og kröfur um áreiðanleika, skilvirkni og sveigjanleika aukast stöðugt. Á sama tíma er vaxandi áhersla á sjálfbærni, gagnsæi og stafrænar lausnir sem styðja við betri ákvarðanatöku og einfaldara daglegt samstarf. Hjá Samskipum vinnum við markvisst að því að þróa heildrænar flutningalausnir sem tengja saman sjó- og landflutninga á ábyrgan og skilvirkan hátt.
Nýtt ár felur í sér ný tækifæri. Við hlökkum til að halda áfram að þróa samstarfið við viðskiptavini með áherslu á traust, sjálfbærar lausnir og framúrskarandi þjónustu. Með sameiginlegri sýn og virku samtali erum við sannfærð um að við getum mætt þeim áskorunum og tækifærum sem framundan eru.

Bestu þakkir fyrir samstarfið á liðnu ári, við hlökkum til áframhaldandi vegferðar,

Birkir Hólm
forstjóri Samskip hf.


 

Af hverju að senda viðskiptavinum fréttir af okkur?

Við viljum byggja upplýst og gagnsætt samstarf. Með reglulegri upplýsingamiðlun deilum við því sem skiptir máli fyrir rekstur viðskiptavina. Breytingar, tækifæri og þróun í flutningum, þjónustu og lausnum.

Á síðasta ári miðluðum við meðal annars upplýsingum um:

  • Rekstur og þjónustu: nýsköpunarverkefni, þróun og mikilvægi strandsiglinga, nýjar flutningsleiðir, þar á meðal til Marokkó, og áframhaldandi uppbyggingu á þjónustuvef og stafrænum lausnum.
  • Breytingar í rekstrarumhverfi: ýmiskonar ferlar, verklag og markaðsaðstæður sem hafa áhrif á daglegt samstarf.
  • Sjálfbærni og framtíðarsýn: umhverfisvænn floti, kolefnissporið, ný skipaafgreiðsla Samskipa gjörbyltir sjálfbærum flutningum með háþróaðri skipaafgreiðslu í hjarta hafnarsvæðisins í Rotterdam og aukið gagnsæi í sjálfbærnimálum.
  • Fólk og samstarf: viðskiptavinakannanir, leiðtogaskipti og þróun í þjónustu og samskiptum.
  • Tengslamyndun og samfélagið: viðburðir, samstarf og vettvangar þar sem við hittumst, ræðum saman og styrkjum tengslin.

 

Rödd viðskiptavina

Við framkvæmum reglulegar púlskannanir til að hlusta á upplifun, væntingar og ábendingar. Þannig tryggjum við að samtalið sé gagnkvæmt og að við bregðumst hratt við þegar eitthvað má betur fara.

Með fréttabréfi og fókus á rödd viðskiptavina, með sameiginlegri sýn og virku samtali þróum við þjónustu sem styður við daglegt starf og árangur til lengri tíma.

Upplýsingar + endurgjöf = betri lausnir.