Samskip breyta siglingaáætlun
17 maí 2017
Frá Kollafirði í Færeyjum er nú fyrst siglt til Rotterdam í Hollandi, áður en haldið er áfram til Immingham í Bretlandi og síðan aftur heim til Íslands. Þessi breytta áætlun styttir flutningstíma vöru frá Íslandi til Hollands og innflutningsvöru frá Bretlandi til Íslands þar sem viðkoma er í Immingham vikulega.
Áætlunin er því þannig: Reykjavík, Ísafjörður, Sauðárkrókur (aðra hverja viku), Akureyri, Húsavík (aðra hverja viku), Reyðarfjörður, Kollafjörður í Færeyjum, Rotterdam í Hollandi, Immingham í Englandi, Reykjavík.
Brottför er frá Reykjavík á mánudögum og er áætluð koma til Rotterdam á miðvikudögum . Skipin sigla frá Immingham á föstudögum áleiðis til Reykjavíkur.
Nánari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.samskip.is





