Samskip og Ocean Infinity tryggja fjármögnun til að ljúka vetnisgámaskipaverkefninu SeaShuttle

ENOVA verðlaunin gera kleifa metnaðarfulla sýn um að tvö útblásturslaus skip sigli milli Noregs og Hollands fyrir árið 2025

SeaShuttle-verkefnið hefur fengið fjármögnun upp á 150 milljónir norskra króna (tæpa tvo milljarða íslenskra króna) frá norska ríkisfyrirtækinu ENOVA. SeaShuttle er metnaðarfull framtíðarsýn um gerð tveggja vetnisknúinna gámaskipa sem búin eru undir sjálfvirkni til afhendingar fyrir árið 2025.

Verkefnið leiða fjölþátta flutningafyrirtækið Samskip og vélfærafræðifyrirtækið Ocean Infinity. SeaShuttle-gámaskipin verða hvort um sig verður knúin með 3,2MW vetnisefnarafal og sigla útblásturslaust milli Ósló og Rotterdam.

Hlutverk ENOVA, sem er í eigu loftslags- og umhverfisráðuneyti Noregs, er að styðja orkuskiptin og tækni sem byggir á sjálfbærri orku.

Samstarf Samskipa og Ocean Infinity, sem fyrst var greint frá á Nor-Shipping 2022 ráðstefnunni í Ósló í apríl, nær jafnt til smíði og reksturs skipanna. Markmiðið er að til verði skilvirkir og öruggir fjölþátta flutningsmátar sem lausir verði við mengandi útblástur.

„Hjá Samskipum tökum við stolt að okkur forystuhlutverk í SeaShuttle brautryðjendaverkefninu, sem er hluti af stefnu fyrirtækisins um að gera græna flutninga auðvelda,“ segir Are Gråthen, forstjóri Samskipa í Noregi. „Með fjármögnuninni er lagður grunnur að því að gera útblásturslausa gámaflutninga að veruleika. Samskip og Ocean Infinity munu einnig hraða þróun sinni á sjálfvirkni í skipaflutningunum og á fjarstýringu bæði skipa og flutningsbúnaðar. Skipin eru fyrsti hluti spennandi samstarfs við Ocean Infinity.“

Gråthen bætir við að SeaShuttle verkefnið styðji við skuldbindingar COP26 Clydebank-yfirlýsingarinnar og búi til eina af fyrstu „grænu tengingum“ Evrópu sem séu lausar við útblástur.

Christoffer Jorgenvag, viðskiptastjóri Ocean Infinity, segir að um leið og tækni fyrirtækisins geri grænar tengingar kleifar styðji hún víðtækari umbreytingu og kolefnishlutleysi í sjávartengdri starfsemi. „Núna er áherslan á SeaShuttle skipin, sem eru bara hluti af heildarstefnu Ocean Infinity um að leysa úr læðingi nýsköpun sem búi til raunverulega sjálfbæra siglingastarfsemi. Við þökkum Enova stuðninginn við framtíðarsýn okkar. Hann undirstrikar eindregna trú á tímamótanálgun okkar og tryggir að við getum haldið áfram á fullum hraða við að koma verkefninu til skila.“

Með fjármögnuninni geta fyrirtækin tvö tekið næsta skref og samið um smíði tveggja nýrra 500 gámaeininga skipa þar sem vetni verður aðalaflgjafi, en til vara verður líka dísilrafstöð um borð. „En við höfum trú á því að grænt vetni verði á viðráðanlegu verði og fáanlegt í Noregi,“ áréttar Gråthen.

Kari-Pekka Laaksonen, forstjóri samstæðu Samskipa, segir sjálfbærni eina af grunnstoðunum í starfsemi Samskipa. „SeaShuttle verkefnið er stórt skref í vegferð Samskipa í átt að útblásturslausum flutningum. Við sjáum fyrir okkur að þetta samspil vetnis, tækni og framkvæmdar geri kostnað við útblásturslausa skipaflutninga samkeppnishæfan við núverandi lausnir,“ segir hann.