Samskip taka þátt í kaupstefnu í Grænlandi
25 október 2013
Samskip og Jónar Transport taka þátt í kaupstefnu í Nuuk í Grænlandi dagana 24.-26. október. Er markmiðið með kaupstefnunni, sem haldin er í menningarhúsinu Katuaq, m.a. að auka viðskiptatengsl á milli landanna. Munu fulltrúar Samskipa og Jóna kynna starfsemi fyrirtækjanna fyrir almenningi á Grænlandi ásamt því að funda með fulltrúum grænlenskra fyrirtækja en Samskip sjá möguleg tækifæri samhliða auknum umsvifum tengdum námuvinnslu og olíuleit í og við Grænland.





