Sjálfbærniskýrsla Samskipa 2024 komin út!

6 nóvember 2025

Við höfum nú birt sjálfbærniskýrslu okkar fyrir árið 2024. Að venju fjallar skýrslan um sjálfbærnivegferð Samskipa síðasta árið með áherslu á sigra, áskoranir og framþróun. Í skýrslunni er mikið af áhugaverðum og skemmtilegum upplýsingum settar fram á aðgengilegan hátt.

Samskip halda áfram að leggja áherslu á sjálfbærara, öflugra og fjölþættara flutningskerfi. Það er nálgun okkar með því að nota blöndu af mismunandi flutningsmáta og leitast við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda til að hlúa betur að jörðinni okkar. Við erum stolt af því að bjóða viðskiptavinum okkar upp á sveigjanlegar og hagkvæmar flutningalausnir sem koma ekki niður á áreiðanleika eða skilvirkni.

Við setjum okkur þá stefnu að vera eitt umhverfisvænasta flutningafyrirtæki Evrópu.

Samskip eru stolt af glæsilegum árangri á sviði sjálfbærni og munu halda áfram á þeirri vegferð þar sem við höfum sjálfbærnistefnu að leiðarljósi í allri okkar starfsemi. Skýrslan er á ensku og er aðgengileg bæði rafrænt og á PDF formi.