Skilmálar

Vefsíða

Vefurinn samskip.is er vefsíða í eigu og starfrækt af Samskipum. Innihald hennar er þjónusta sem veitt er gestum og viðskiptavinum. Samskip áskilur sér rétt til að eyða, breyta og bæta við efni þessarar síðu hvenær sem er af hvaða ástæðu sem er, án tilkynningar. Samskip leitast við að tryggja að upplýsingarnar á þessari vefsíðu séu áreiðanlegar. Hins vegar, með því að nota þessa vefsíðu, samþykkir þú að upplýsingarnar sem gefnar eru á vefsíðunni séu veittar „eins og þær eru“. Þess vegna veita Samskip engar yfirlýsingar eða ábyrgðir af neinu tagi varðandi heilleika, nákvæmni, tímanleika, framboð, virkni, samræmi við gildandi lög eða niðurstöður sem fást af notkun þessara upplýsinga.

Með því að nota vef Samskipa samþykkir þú áhættuna á að upplýsingarnar séu ófullnægjandi eða ónákvæmar eða uppfylli ekki þarfir þínar eða kröfur. Í engu tilviki skulu Samskip, tengd sameignarfélög eða fyrirtæki, eða samstarfsaðilar, umboðsmenn eða starfsmenn þeirra, vera ábyrgir gagnvart neinum notanda eða þriðja aðila fyrir beinu tjóni, tapuðum hagnaði, tekjum, viðskiptatækifærum eða viðskiptalegum ávinningi af neinu tagi, né af beinu eða óbeinu tapi eða skemmdum og útgjöldum sem beint eða óbeint tengjast notkun eða misnotkun á vefsíðu Samskipa.

Tölvupóstsendingar frá Samskipum

Tölvupóstur og viðhengi sem starfsmenn Samskipa senda geta innihaldið trúnaðarupplýsingar og leynilegar upplýsingar og eru eingöngu ætlaðar þeim einstaklingi eða aðila sem þeim er beint til. Ef þú hefur fyrir tilviljun, mistök eða án heimildar fengið tölvupóst og viðhengi hans, biðjum við þig um að gæta strangs trúnaðar og að þú notir ekki efnið á nokkurn hátt og lætur okkur strax vita að þú hafir fengið þau fyrir mistök.

Persónuverndarstefna

Samskip viðurkenna og virða mikilvægi friðhelgi notenda á vefsíðum okkar. Þessi stefna gerir grein fyrir persónuupplýsingum og vafrakökum o.fl. sem notuð eru í gegnum vefsíður okkar. Ef þú samþykkir ekki skilmálana hér, vinsamlegast ekki nota þessa vefsíðu, þjónustu Samskipa og eyða vafrakökum sem vefsíðan setur.