Alhliða hafnarþjónusta á Íslandi fyrir skemmtiferðaskip

Samskip eru alþjóðlegt fyrirtæki sem býður upp á flutninga á landi, sjó og í lofti. Auk gáma-, hefðbundinna vöruflutninga og verkefnaflutninga, veita Samskip sveigjanlega og áreiðanlega alhliða hafnarumboðsþjónustu á Íslandi og starfa í dag fyrir nokkur helstu skemmtiferðaskipa fyrirtæki sem sigla til Íslands.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Samskip Agency til að fá nánari upplýsingar.

Alhliða þjónusta

Sérfræðiþekking á viðsnúningi farþega og öll formsatriði tollamála ásamt vöruþjónustu

Reynsla og þekking

Áratuga reynsla af þjónustu við stóra viðskiptavini og samstarf við hafnaryfirvöld

Samstarf við yfirvöld

Samskip sjá um öll formsatriði tollamála, innflytjenda og strandgæslu

Sérsniðin þjónusta

Allt frá smærri ævintýraskipum til nokkurra stærstu skipa sem heimsækja Ísland

Áralöng reynsla og þekking

Reynt starfsfólk hefur góða þekkingu og skilning á þörfum skemmtiferðaskipa viðskiptavina okkar og vinna náið með íslenskum yfirvöldum, höfnum og söluaðilum í ferðageiranum.

Við þjónustum skemmtiferðaskip í hinum ýmsu höfnum á Íslandi, allt frá smærri ævintýraskipum til nokkurra stærstu skipa sem heimsækja Ísland. Við miðum að því að sníða þjónustuna að þörfum viðskiptavina okkar með hagkvæmum lausnum.

Nánari upplýsingar um hafnaryfirvöld á Íslandi og samstarfsaðila okkar má sjá á vef Faxaflóahafna.

Þjónusta

Við erum staðsett í Reykjavík og höfum að auki net skrifstofu- og umboðsmanna víðs-vegar um landið. Starfsfólk okkar skilur þörfina fyrir nákvæmni og hraða í afgreiðslu DA (e. Documents against Acceptance) til viðskiptavina okkar og leitast við að afgreiða rekstrartengd skjöl hratt og óaðfinnanlega. Auk þess geta Samskip veitt ýmsar flutningslausnir um allt land sem og heil-og lausagáms sendingar til og frá Íslandi með Samskipum og Jónar Transport.

Hafnarskrifstofuþjónusta (inniheldur en takmarkast ekki við):

  • 24 tíma umboðsþjónusta
  • Sérfræðiþekking á viðsnúningi farþega, þar sem Samskip Agency er meðal frumherja í flokki í þjónustunnar á Íslandi
  • Náið samstarf við hafnaryfirvöld varðandi lóðsunar- og togaraþjónustu
  • Öll formsatriði tollamála, innflytjenda og strandgæslu
  • Samhæfing á læknisþjónustu fyrir áhafnir og farþega
  • Samkeppnishæf verðtilboð fyrir FCL og LCL sendingar til Íslands í gegnum alþjóðlegt flutningsnet okkar
  • Afgreiðsla á vörum og varahlutum
  • Skipting á áhöfnum og afgreiðsla gagna í málefnum innflytjenda
  • Sorp- og förgun frá skipum
  • Skýr skipting og skil á reikningum til viðeigandi rekstrareininga viðskiptavina okkar í gegnum rafræn innheimtukerfi eða hefðbundin útprentuð eintök

Meðal viðskiptavina eru

Sérfræðingar okkar í Samskip Agency

  • Guðmundur Óskarsson

    Guðmundur Óskarsson

    Forstöðumaður flutningsdeildar / Director Logistics Department

    Forstöðumaður flutningsdeildar / Director Logistics Department

  • Thorgils Heimisson

    Thorgils Heimisson

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager