Almennir skilmálar
Við biðjum viðskiptavini að kynna sér ítarlega skilmála félagsins sem finna má hér fyrir neðan.
Um sjóflutninga, þ.m.t. strandflutninga, gilda flutningsskilmálar Samskipa (fyrir fjölþáttaflutning og flutning frá höfn til hafnar), eins og þeir eru á hverjum tíma, flutningssamningar milli aðila og ákvæði siglingalaga nr. 34/1985, eftir því sem við á.
Um flutninga innanlands gilda, auk skilmála flutninga á landi flutningssamningar milli aðila, ákvæði landflutningalaga nr. 40/2010 og flutningsskilmálar Samskipa (fyrir fjölþáttaflutning og flutning frá höfn til hafnar), eins og þeir eru á hverjum tíma, eftir því sem við á.
Almennir þjónustuskilmálar flutningasviðs SVÞ (Samtaka verslunar og þjónustu), eins og þeir eru á hverjum tíma, skulu gilda um alla þjónustu nema flutninga, sem farmflytjandi veitir viðskiptamanni, eftir því sem við á, nema um annað sé samið.
Viðskiptavinum er bent á að tryggja vörur sínar gegn hvers konar tjóni, þar sem ábyrgð félagsins er takmörkuð samkvæmt flutningsskilmálum félagsins.
Félagið áskilur sér rétt til þess að leiðrétta flutningsgjöld og aðra liði reiknings án fyrirvara.
Sjá nánar: Incoterms 2020.
Sjóflutningar
Varð tjón á vöru í flutningi á vegum Samskipa?
Hér er að finna leiðbeiningar og allar upplýsingar um hvernig á að bera sig að í samskiptum við Samskip.
Fyrstu viðbrögð
Komi til þess, að viðskiptavinir Samskipa fái afhentar skemmdar vörur eða eitthvað vantar af þeim er áríðandi að gerð sé athugasemd þar um og hún skráð á kvittun viðtakanda fyrir vörunni. Hugsanlegt er, að skemmdir eða vantanir komi ekki í ljós fyrr en eftir að vara er komin í vörslu viðtakanda og er þá áríðandi að skriflegri tilkynningu verði komið til Samskipa innan þriggja daga frá afhendingu. Hægt er að senda þessa tilkynningu á netfang tjónadeildar sem er claims@samskip.com.
Í tilkynningunni er mikilvægt að fram komi eftirfarandi upplýsingar:
- Með hvaða skipi varan var flutt
- Í hvaða ferð
- Númer farmbréfs
- Númer gáms
- Hvers eðlis tjónið er
- Áætlaða fjárhæð tjónsins
Þetta er nauðsynlegt svo félagið geti tekið afstöðu til þess, hvort kalla þurfi til óháðan skoðunaraðila af sinni hálfu. Jafnframt er áríðandi að vörueigandi tilkynni farmtryggjanda sínum um málið og feli honum að skoða og meta vörurnar. Séu vörur ekki vátryggðar af eiganda þarf hann að meta, hvort ástæða er til að fá óháðan aðila til að meta tjónið, enda er hver skoðunargerð einvörðungu til afnota fyrir þann sem um hana bað.
Kröfugerð
Falli tjónið ekki undir vátryggingu eiganda ætti að senda formlega kröfu eins fljótt og auðið er til tjónadeildar Samskipa eftir að fyrir liggur hvert umfang tjónsins og fjárhæð þess er.
Kröfur sendist til:
Samskip hf. – Tjónadeild
Kjalarvogi 7-15
104 Reykjavík
Eftirfarandi gögn þurfa að liggja fyrir til stuðnings kröfu:
- Formleg tjónakrafa, þar sem tjóni er lýst í stuttu máli og fjárhæð kröfu kemur fram.
- Eintak af farmskírteini, hafi varan verið skráð með þeim hætti, en ella eintak af fylgibréfi/Sea Waybill.
- Afrit af vörureikningi og pökkunarlista.
- Afrit af skýrslu um skoðun sem vörueigandi hefur látið gera, sé um það að ræða.
- Afrit af móttökukvittun þar sem gerðar hafa verið athugasemdir um ástand vöru. Ef um vöntun er að ræða í heilgám (FCL-gám) þarf móttökukvittun að gefa til kynna gámanúmer og innsiglisnúmer, sérstaklega ef það hefur verið annað en upprunalegt innsigli á gámi. Þarna ætti einnig að koma fram, þegar um vöntun er að ræða, hvert var númer eða annað auðkenni á pakka eða einingu sem hefur vantað, auk frekari lýsingar á gerð og tegund vöru þegar um blandaðar sendingar er að ræða.
- Ljósmyndir af skemmdri vöru eða gámi, ef þær eru til.
Sé um að ræða tjón á vöru sem ekki var unnt að nýta, þarf að fylgja staðfesting á eyðingu vörunnar. Hafi hins vegar eitthvað fengist fyrir skemmda vöru skal draga slíkt verðmæti frá kröfufjárhæð. Vörueiganda ber að grípa til hverra þeirra aðgerða sem mögulegar eru til að draga úr tjóni.
Þegar lögð eru fram nauðsynleg gögn og sannanir fyrir tjóni munu Samskip tafarlaust aðstoða viðskiptavini sína við kröfumál þeirra vegna tjóna á vörum í flutningi eða geymslu hjá félaginu.
Eyðublað sem skila á til tjónadeildar
Nánari upplýsingar fást í síma 458-8321 eða með því að senda tölvupóst til tjónadeildar á netfangið claims@samskip.com.


Innanlandsflutningar
Ef vöruvöntun eða tjónamál koma upp hjá viðskiptavinum í innanlandsflutningi er nauðsynlegt að kynna sér upplýsingarnar hér fyrir neðan.
Vöntun í sendingu
Þegar uppgefinn fjöldi á fylgibréfi og vörumagn fer ekki saman við afhendingu er talað um vöntun. Tilkynning um vöruvöntun þarf að hafa borist umsjónarmanni vantana hjá innanlandsdeild Samskipa á netfangið tjonogvantanir@samskip.com innan 72 klst. frá brottför flutningabíls frá stöð.
Aðeins flutningsaðili getur tilkynnt um vöntun og þarf því móttakandi að tilkynna vöntun til umsjónarmanns sem allra fyrst og eigi síðar en innan 72 klst.
Ábyrgðartilflutningur á sér stað á öllum stigum ferilsins.
- Við móttöku vöru hjá innanlandsdeild færist ábyrgð yfir á Samskip.
- Við lestun flutningabíls færist ábyrgð yfir á flutningsaðila.
- Við losun bíls í afgreiðslu færist ábyrgð yfir á viðkomandi afgreiðslu.
- Við afhendingu vöru flyst ábyrgð yfir á viðtakanda.
Innanlandsflutningar Samskipa leggja kapp á að leysa úr öllum vöntunarmálum eins fljótt og auðið er. Viðmiðunin er að reyna að leysa úr málum einstaklinga á 2-5 dögum en mál fyrirtækja geta tekið 1-3 vikur. Leysist málið ekki telst það orðið tjónamál.
Þegar innanlandsdeild er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.
- Afrit fylgibréfs.
- Staðfesting yfirmanns hjá innanlandsdeild eða öðrum afgreiðslum innanlandsdeildar.
- Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda til staðfestingar á verðmæti sendingar.
Athugið að vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum.
Tjónamál
Tjón telst hafa orðið hafi vara skemmst í meðförum starfsmanna Samskipa eða orðið fyrir skemmdum í flutningum. Ef tjón verður á vöru skal fylla út tjónakröfu. Tilkynning um tjón þarf að hafa borist umsjónarmanni tjóna hjá innanlandsdeild Samskipa á netfangið tjonogvantanir@samskip.com innan 72 klst. frá brottför flutningabíls frá stöð.
Aðeins flutningsaðili getur tilkynnt um tjón og þarf því móttakandi að tilkynna tjón til umsjónarmanns sem allra fyrst og eigi síðar en innan 72 klst.
Mál varðandi vöruvantanir sem ekki hefur tekist að leysa teljast tjónamál eftir ákveðinn tíma.
Um tjón þarf að gera athugasemd við afhendingu vöru og á það við á öllum stigum ferilsins.
- Við móttöku hjá innanlandsdeild
- Við lestun á flutningabíl.
- Við losun í afgreiðslu.
- Við endanlega vöruafhendingu.
Móttakandi vöru þarf að gera athugasemd vegna tjóns um leið og varan er afhent honum af flutningsaðila. Flutningsaðili útbýr þá tjónaskýrslu sem hann sendir umsjónarmanni tjónamála hjá innanlandsflutningum Samskipa. Áskilinn er réttur til að kalla til tjónaskoðunarmann frá tryggingarfélagi sé þess talin þörf.
Innanlandsflutningar Samskipa reyna að leysa öll tjónamál eins fljótt og auðið er. Þyki sannað að varan hafi skemmst í meðförum innanlandsdeildar er miðað við að leysa úr málum einstaklinga á 2-5 dögum og málum fyrirtækja á 1-3 vikum. Tryggingamál geta þó dregist lengur.
Þegar Innanlandsdeild Samskipa er send tjónakrafa, á þar til gerðu eyðublaði hér á vefnum, þurfa eftirfarandi gögn að fylgja bótakröfu.
- Afrit fylgibréfs.
- Staðfesting rekstrarstjóra hjá innanlandsdeild eða yfirmanns á afgreiðslum innanlandsdeildar
- Afrit af upprunareikningi vöru til viðtakanda, til staðfestingar á verðmæti sendingar.
Athugið að vara er alltaf bætt á sama verði og viðtakandi kaupir hana á, óháð afsláttum og tilboðum.
Ef tjón verður á vöru skal fylla út tjónakröfu.
Nánari upplýsingar veitir tjónadeild í síma 458-8321 og á netfanginu: claims@samskip.com








