Vöruhýsing og þjónusta
Í vörumiðstöðinni mætast millilanda- og innanlandskerfi Samskipa og gegnir hún lykilhlutverki í samþættingu kerfanna. Sendingar á leið til og frá landinu með Samskipum eða Jónum Transport fara um miðstöðina auk allra sendinga með innanlandsdeild Samskipa, sem sinna flutningum um land allt og dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess fara þúsundir bretta um húsið á ári hverju í beinni hýsingu.
Fáðu tilboð í vöruhýsingu í vöruhóteli Samskipa með því að hafa samband í síma 458-8400 eða sendu okkur póst og við finnum lausn á þínum þörfum.

Heildarlausnir
Allt á einum stað og lausnir í boði sem henta okkar viðskiptavinum.
Þjónusta
til að mæta öllum þörfum viðskiptavina okkar.
Kostnaður
Miðstöð fyrir millilanda- og innanlandssendingar.
Þjónustufulltrúar
Aðstoð með vöruhýsingu, umsjón, móttaka og afhending á vörum.
Þjónusta
Þjónustufulltrúar okkar sjá um þjónustu við viðskiptavini vöruhýsingar, hafa umsjón með móttöku á vörum og afhendingu þeirra í vöruhús okkar. Þeir hafa umsjón með skráningu nýrra viðskiptavina, skráningu á móttöku og tiltekt fyrir viðskiptavini þegar við á og þá hafa þeir einnig umsjón með skjalavistun, flokkun og frágangi tollskjala og fylgigögnum þeim tengdum.
Þjónustufulltrúar Vörumiðstöðvar eru boðnir og búnir að aðstoða viðskiptavini, ekki hika við að hafa samband.
Netfangið okkar er vorumidstod@samskip.com og símanúmerið er 458-8400.


Tollfrjálst svæði og lyfjageymslur
Helstu kostir vöruhýsingarhótels okkar eru meðal annars:
Sérfræðiþekking okkar
Miðstöð fyrir millilanda- og innanlandssendingar
Í vörumiðstöðinni mætast millilanda- og innanlandskerfi Samskipa og gegnir hún lykilhlutverki í samþættingu kerfanna. Sendingar á leið til og frá landinu með Samskipum eða Jónum Transport fara um miðstöðina auk allra sendinga með Samskipum innanlands, sem sinna flutningum um land allt og dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess fara þúsundir bretta um húsið á ári hverju í beinni hýsingu.
Við bjóðum ýmsar leiðir:
Hefðbundin leið
Vara kemur til geymslu ýmist í innflutningi eða frá innlendum birgja. Varan er móttekin, sett í geymslu (geymsluhólf). Vara er ýmist afhent beint úr geymsluhólfi (heilpallar) eða afhent úr tínsluhólfum (kassar, einingar) og byggður upp pallur til afhendingar.
Sendingu skipt upp
Vara kemur frá birgja á einu bretti og er afhent á marga fyrirfram skilgreinda staði með svokölluðu „Put to store“ kerfi, þar sem brettinu er skipt upp á staðina.
Mörg bretti á marga staði
Vara kemur á brettum til vörumiðstöðvarinnar, þar sem sérhvert bretti hefur ákveðinn móttakanda (cross-docking) og eru þau svo afhent á viðeigandi afhendingarstað.
Önnur þjónusta
Vörumiðstöðin veitir ýmsa aðra þjónustu s.s. merkingu á vörum, pökkun (í stærri umbúðir, fleiri vörur í sömu pakkningu), samsetningu á vörum (t.d. grill) o.fl.
Hvers kyns vörur hýsum við?
Vörumiðstöðin geymir vörur af öllum stærðum og gerðum, hvort sem um er að ræða almenna þurrvöru, frystivöru, kælivöru eða hættulegan varning. Fjölbreyttar hólfagerðir tryggja að vara er geymd í hentugu hólfi sem lækkar geymslukostnað.
Í vörumiðstöðinni eru bæði geymdar tollafgreiddar og ótollafgreiddar vörur og býður það upp á sveigjanleika fyrir innflytjendur sem geta látið tollafgreiða hluta af sendingum eins og hentar hverju sinni.
Helsti ávinningur viðskiptavina af hýsingu hjá Samskipum er minni fjárbinding, þar sem viðskiptavinir greiða einungis fyrir notað pláss og þjónustu í stað fasts kostnaðar við eigið húsnæði og annað sem því fylgir.
Kostnaður er því í samræmi við umfang starfseminnar á hverjum tíma. Árstíðabundnar sveiflur eru þekktar í mörgum atvinnugreinum og þá þarf ekki að greiða fyrir ónýtt rými þess á milli.
Allar vörur sem fara í gegnum vörumiðstöðina fá strikamerki og eru skannaðar inn í húsið. Strikamerkin auðvelda rekjanleika vörunnar og tryggja áreiðanleika í birgðahaldi og lágmarkar rýrnun.
Öflugt upplýsingakerfi gerir viðskiptavinum kleift að fylgjast með stöðu á birgðum í rauntíma og senda rafrænar pantanir til vörumiðstöðvarinnar.

Helstu kostir kælugeymslu Samskipa
Í Ísheimum eru fullkomnar tæknivæddar geymslur fyrir frystar afurðir – bæði minni og stærri farma, með rekkakerfi og fyrir heilfarma.
Geymslurnar taka alls 6.500 tonn eða 6.500 palla.

Af hverju að velja Samskip?
Við flytjum ekki eingöngu sendingar um vegi og sjó, heldur einnig um skipaskurði og eftir lestarteinum. Með því að nýta ólíka flutningsmáta á sem hagkvæmastan hátt tryggjum við viðskiptavinum okkar sveigjanlegar og áreiðanlegar lausnir sem þæta þörfum þeirra hvar sem er. Fjölþátta flutningslausnir eru snjallari leið til að líta á vöruflutninga og ástæðan er augljós. Þegar markmiðið er að standa ávallt við loforð um hagkvæmni, áreiðanleika og góða þjónustu er mikilvægt að hafa fleiri en valkost í flutningum. Á sama tíma eru fjölþátta flutningslausnir mun umhverfisvænni og hjálpa okkur og viðskiptavinum að draga úr kolefnisfótspori.
Við erum Samskip og hver ferð skiptir máli!






