Aðgengi að stöðinni:

Hafa þarf samband við Inga S. Ólafsson í s. 458-8658 eða með tölvupósti á netfangið: thvottur@samskip.is.

Þá er stofnaður aðgangur viðskiptavinar (rafræn viðskipti). Bílstjórar nota stöðina eftir hentugleika og skrá þvott á viðskiptanúmer (greiðsla fer fram mánaðarlega, engin þörf á staðgreiðslu á staðnum).

Þvottastöðin hentar vel fyrir fyrirtæki með stóran bílaflota með marga bílstjóra þar sem hvert tæki getur haft sitt aðgöngukort. Rafræn kvittun er í boði að þvotti loknum.

Þvottastöð fyrir stærri bíla

Bílaþvottastöð Samskipa er staðsett á hafnarsvæði Samskipa í Kjalarvogi 7-15. Hún er sérhönnuð og fullkomlega búin sjálfvirk bílaþvottastöð fyrir stóra bíla, rútur, flutningabíla, vörubíla og eftirvagna. Þessi öfluga og afkastamiklastöð er sú eina sinnar tegundar á landinu og er fullkomin lausn fyrir atvinnubíla sem þurfa reglulegan og skilvirkan þvott.

Ökumenn stjórna þvotti með snertiskjá þar sem hægt er að velja á milli margvíslegra möguleika, bæði hvað varðar þvottategund og sápumagn. Þvottastöðin er alsjálfvirk og endurvinnur frárennslisvatn úr hitakerfum frá starfseminni og notar sérblönduð efni fyrir bílaþvottastöðvar sem eru mildari fyrir umhverfið og tryggir því góð þrif án þess að ganga á náttúruna og þá er afgangsvatn er sett í endurvinnslutank.

Opin allan sólarhringinn
Stöðin er opin alla daga ársins allan sólarhringinn fyrir bílstjóra, fyrirtæki og einstaklinga, innan og utan Samskipa og því hægt að nota stöðina þegar best hentar.

  • Númeralestur tækis við aðkomu að stöðinni

  • Hver bifreið/bílstjóri með sitt aðgöngukort

  • Sjálvirkur og/eða handvirkur þvottur í boði

  • Hægt að velja hraðþvott þar sem ökumaður þarf ekki að yfirgefa bílinn

  • Hliðar- og undirvagnsþvottur

  • Handbyssur með vatnsháþrýstiþvotti, olíu- og tjöruhreinsi og sápukvoðu

Opin 24/7

Þvottastöðin er aðgengileg allan sólarhringinn hvenær sem hentar.

Hraðþvottur

Hægt að velja hraðþvott þar sem ökumenn þurfa ekki að yfirgefa tækið

Aðgöngukort

Hver ökumaður með sitt aðgöngukort og sjálvirkur lestur bílnúmera

Umhverfisvæn

Stöðin nýtir afgangs heitavatn og notar umhverfisvæn þvotta- og sápuefni