
Aukin yfirsýn og öryggi í kæli- og frystiflutningum
21 september 2026
Samskip hafa tekið í notkun nýja 40 feta frysti- og kæligáma með ORBCOMM-rakningarbúnaði. Þessi búnaður gerir okkur kleift að fylgjast með staðsetningu gámanna, hitastigi og virkni kælikerfisins í rauntíma, allt frá brottför til afhendingar.
Stöðugt og rétt hitastig skiptir miklu máli við flutning á viðkvæmum vörum, svo sem matvælum, sjávarafurðum og lyfjum. Með ORBCOMM-búnaðinum fáum við sjálfvirkar viðvaranir ef breytingar verða á hitastigi og/eða virkni kælikerfisins. Þannig er hægt að bregðast hratt við og grípa til ráðstafana áður en frávik hafa áhrif á gæði farmsins.
Mun meiri yfirsýn og aukið öryggi fyrir viðskiptavini
Fyrir viðskiptavini Samskipa felst ávinningurinn meðal annars í:
- auknu öryggi við flutning hitaviðkvæmra og verðmætra vara
- betri yfirsýn yfir sendinguna á meðan hún er í flutningi
- skjótari viðbrögðum ef frávik koma upp
- meiri rekjanleika í allri flutningskeðjunni
- traustari gögnum um hitastig og meðhöndlun farmsins
Þetta er sérstaklega mikilvægt þegar gerðar eru strangar kröfur um órofna kælikeðju, til dæmis við flutning lyfja. Gögnin styðja við skráningu og staðfestingu á því að rétt hitastig hafi haldist alla flutningsleiðina.
Nýju gámarnir og rakningarbúnaðurinn bæta einnig upplýsingaflæði milli okkar og viðskiptavina. Með rauntímavöktun og betri gögnum getum við veitt enn öruggari og áreiðanlegri þjónustu við flutning á kæli- og frystivörum.
Innleiðingin er liður í áframhaldandi þróun kæli- og frystiflutninga Samskipa og styður við markmið okkar um að bjóða viðskiptavinum öruggar, gagnsæjar og áreiðanlegar flutningslausnir.





