Markmið í loftlagsmálum
22 July 2016
Samskip hafa einsett sér að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum. Því hafa Samskip sett sér þrjú megin markmið:
- Minnka kolefnisfótspor í flutningum til og frá Íslandi og Færeyjum um 10% á næstu fimm árum, mælt í grömmum af CO2 á flutt tonn á hvern fluttan kílómetra eða úr 42 g/tonnkm 2015 í 38 g/tonnkm árið 2020.
- Minnka kolefnisfótspor í innanlandsflutningum um 7% á næstu fimm árum, mælt í grömmum af CO2 á flutt tonn á hvern fluttan kílómetra eða úr 124 g/tonnkm 2015 í 115 g/tonnkm árið 2020.
- Auka hlutfall endurnýtanlegs úrgangs frá starfseminni úr 46% 2015 í 60% árið 2020.
Til þess að ná ofangreindum markmiðum verður lögð sérstök áhersla á eftirfarandi:
- Bæta nýtingu flutningakerfa
- Bæta eldsneytisnýtingu
- Minnka vægi jarðefnaeldsneytis í starfseminni
- Auka flokkun á úrgangi á starfsstöðvum Samskipa
Samskip munu árlega birta niðurstöður úr mælingum og leita allra leiða til að ná settum markmiðum.
Fyrir hönd Samskipa
Pálmar Óli Magnússon forstjóri





