Samfélagsábyrgð er leiðarstefið

11 March 2020

Fjallað var um aðgerðir og nálgun Samskipa á sviði
samfélagsábyrðar í aukablaði Fréttablaðsins 28. febrúar síðastliðinn. Fram
kemur í umfjölluninni að Samskip eru leiðandi í aðgerðum sem draga úr
orkunotkun og minnka umhverfisfótspor og að í mannauðsmálum hafi fyrirtækið
líka að leiðarljósi gildi jafnréttis og jákvæðra samskipta. Texti
umfjöllunarinnar fer hér á eftir.

Óvíst er að allir átti sig á hversu mikla áherslu Samskip
leggja á samfélagsábyrgð í störfum sínum, en þar undir falla náttúrlega bæði
aðgerðir í þágu sjálfbærni og til mótvægis við skaðleg umhverfisáhrif og ekki
síður mannauðs- og jafnréttisstefna fyrirtækisins,“ segir Þórunn Inga
Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa. „Meðvitund
um samfélagsábyrgð hefur alla tíð verið leiðarstef í starfsemi félagsins.“

Þórunn bendir á að Samskip beiti sér fyrir virkum aðgerðum á
sviði umhverfismála, taki þátt í nýsköpun og þróun til að draga úr
umhverfisáhrifum og séu með fyrstu fyrirtækjum til þess að setja sér markvissa
umhverfisstefnu. „Í hnotskurn er hún að Samskip stefni að því að vera ávallt í
fararbroddi á sviði umhverfismála. Svo fylgir því líka fjölþættur ávinningur að
draga úr orkunotkun, jafnt fyrir fyrirtækið og samfélagið í heild. Það leiðir
til aukinnar hagræðingar í starfseminni og minnkar umhverfisfótspor
fyrirtækisins um leið og dregið er úr innflutningi á eldsneyti og sóun á
orkuauðlindum heimsins. Orkusparandi aðgerðir tikka í öll boxin.“

Góður starfsandi

Mannauðsstefnan kristallist svo í kjörorði félagsins um að
það sé gott að vinna hjá Samskipum. „Góður starfsandi skiptir höfuðmáli, enda
eykur jákvætt viðhorf starfsfólks starfsánægju og gleði á vinnustaðnum og við
leggjum áherslu á jákvæð og uppbyggjandi samskipti og jafnræði á meðal starfsmanna,
óháð kyni, uppruna eða trúarbrögðum.“ Samskip hafa líka skrifað undir sáttmála
gegn einelti, áreitni og ofbeldi.

Þetta eru meira en orð á blaði og markmiðunum fylgt eftir.
Félagið hefur innleitt hjá sér jafnlaunakerfi og jafnréttisstefnu sem nær til allra
starfsmanna á Íslandi. „Þetta er í anda þess samfélags sem Íslendingar hafa
sammælst um að byggja upp, þar sem jafn réttur einstaklinga er í fyrirrúmi,“
segir Þórunn, en með skýrum verklagsramma sé leitast við að tryggja jafnrétti
og jafna stöðu kynjanna innan fyrirtækisins og að starfsmenn hafi jöfn tækifæri
til að nýta hæfni sína í starfi.

Kjörorð Samskipa eru að það sé gott að vinna hjá fyrirtækinu. Þar er starfsandinn líka góður og jafn réttur einstaklinga í fyrirrúmi. (Mynd: FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI)

Samskip í fararbroddi

Hvað umhverfismál varðar hafa Samskip lengi verið í
fararbroddi og ætla að halda þeirri stöðu. „Við kappkostum að fylgjast vel með
allri þróun og nýjungum og setjum okkur skýr markmið um árangur. Hann mælum við
líka reglulega og tryggjum þannig stöðugar umbætur og framþróun.“

Þórunn viðurkennir um leið að það geti verið áskorun að ná
settum markmiðum, því flutningar á sjó séu í eðli sínu mengandi, þótt
hlutfallstölur á flutta einingu séu margfalt betri en til dæmis með flugi. „Svo
geta komið sveiflur í inn- eða útflutningi sem hafa áhrif á tölur um útblástur
á móti hverju fluttu tonni. En markmiðin halda okkur við efnið og við vitum að
hverju er stefnt, þ.e.a.s. að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif frá allri
starfsemi félagsins.“ Fjölþátta flutningskerfi Samskipa, sem í Evrópu notist
einnig við lestir og pramma, auk skipa og flutningabíla, sé í samræmi við
markmið Evrópusambandsins um leiðir til að draga úr útblæstri frá flutningum.

Hverfa frá plasti og pappír

Samskip mæla orkunotkun reglulega, nýta vistvæna orkugjafa
eins og kostur er og leitast við að halda mengun í lágmarki. Við val á birgjum,
tækjum og öðrum aðföngum er svo leitast við að velja umhverfisvæna kosti umfram
aðra. Um þrjú ár eru síðan plastmál og -flöskur voru gerðar útlægar hjá
Samskipum og unnið hefur verið markvisst að því að minnka pappírsnotkun. „Frá
og með áramótum hættum við til dæmis að taka á móti reikningum á pappírsformi
og fáum þá rafrænt í staðinn.“

Eins er markvisst unnið að því að draga úr matarsóun í
mötuneyti Samskipa og tölur birtar á hverjum degi um magn afganga til að vekja
fólk til umhugsunar. „Þetta hefur strax skilað árangri og fólk gætir fremur að
skammtastærðum til þess að síður þurfi að henda afgöngum.“

Þá eiga Samskip í margvíslegu samstarfi innanlands um
aðgerðir til stuðnings umhverfinu, svo sem við Brim, Norðanfisk og Íslenska
gámafélagið um endurvinnslu og útflutning á frauðplasti. Auk þess flytja Samskip
sorp frá Íslenska gámafélaginu sem ekki er hægt að endurvinna eða endurnýta hér
heima til brennslu í Evrópu. „Ávinningur af því er tvíþættur því ruslið þarf þá
ekki að urða hér, með tilheyrandi umhverfissóðaskap, heldur nýtist það til
húshitunar og raforkuframleiðslu erlendis sem annars hefði verið staðið að með
brennslu kola eða olíu.“

Fyrir utan beinar aðgerðir styðja Samskip líka við margs
konar málefni. Til dæmis eru Samskip stofnaðilar að Votlendissjóðnum, þar sem
Þórunn Inga er varamaður í stjórn. „Stuðningur við slík verkefni er hluti af
umhverfisstefnu Samskipa, auk beinna aðgerða til að draga úr kolefnisfótspori
starfseminnar,“ segir Þórunn, en fyrirtækið hefur líka styrkt íþróttafélög,
líknarfélög og menningarfélög af ýmsu tagi. „Slíkar styrkveitingar eru í
samræmi við stefnu Samskipa um samfélagslega ábyrgð, enda erum við öll á sama
báti þegar að því kemur að byggja gott samfélag og hlúa að því sem vel er
gert.“

Margvíslegar aðgerðir

  • Gámar Samskipa eru nú um
    960 kílóum, eða 20%, léttari en þeir voru fyrir 20 árum sem dregur úr
    orkunotkun.
  • Árið 2015 tóku Samskip
    við rekstri skipanna Kvitnos og Kvitbjørn sem brenna fljótandi jarðgasi
    (LNG). Skipin losa ekki köfnunarefnisoxíð, lágmarka brennisteinsdíoxíð og
    losa 70 prósent minni koltvísýring á hvert flutt tonn.
  • Samskip leiða
    „Seashuttle“ verkefnið þar sem í þróun er næsta kynslóð sjálfbærra
    skipaflutninga á styttri sjóleiðum, sjálfvirk gámaskip sem gefa ekki frá
    sér mengaðan útblástur.
  • Hjá systurfyrirtækið
    Samskipa í Rotterdam, FrigoCare, er að finna stærsta sólarorkuver
    borgarinnar, 3.100 sólarsellur sem þekja 7.500 fermetra. Raforkuframleiðslan
    nemur raforkuþörf um 250 smærri heimila.
  • Samskip nota
    vöruflutningabifreiðar sem eru ríkulega búnar tækjum og tólum sem miða að
    því að auka öryggi og tryggja minni útblástur og eins vistvænan flutning
    og völ er á.
  • Þvottastöð Samskipa í
    Reykjavík fyrir stór ökutæki er eins visthæf og kostur er og notast við
    frárennslisvatn úr hitakerfum höfuðstöðvanna.
  • Í fyrra voru Samskip
    tilnefnd til verðlauna Safety4Sea og Europort í flokki hreinna flutninga
    fyrir markvissan stuðning við nýjungar í sjálfbærum flutningum með
    rannsóknum, þróun, innleiðingu tækninýjunga og þjálfun.

Greinina má einnig skoða á vef Fréttablaðsins: https://www.frettabladid.is/kynningar/samfelagsabyrg-er-leiarstefi/