Öll undir einu merki
17 October 2016
Samskip bjóða viðskiptavinum heildstæðar flutningslausnir á landi og sjó. Við erum eitt fyrirtæki og með breytingunni skerpum við áherslur á heildar flutningaþjónustu, einföldum viðmót og tryggjum að við komum allsstaðar fram á sama hátt. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum okkar bestu mögulegu þjónustu. Samskip einsetja sér að vera í fararbroddi í flutningum. Samhliða sameiningu starfseminnar undir einu nafni munum við áfram leita leiða til að efla starfsemi okkar og uppfylla enn betur væntingar viðskiptavina.





