Tilkynning um breytingu á LSS
2 December 2019
2015
voru innleiddar reglur um að hámarks brennisteinsinnihald olíu væri 0,1% á
ákveðnum hafsvæðum (Emission Control Areas, ECA) og frá þeim tíma hafa
Samskip innheimt umhverfisgjald, svonefnt low sulphur surcharge eða LSS.
Frá og með 1. janúar 2020 verða innleiddar
breyttar alþjóðlegar reglur um brennisteinsinnihald í skipaolíu utan ECA svæða.
Þar verður hámarks brennisteinsinnihald olíu 0,5% í stað 3,5%. Eins og áður
segir taka þessar breytingar til hafsvæða fyrir utan þau svæði sem voru
skilgreind fyrir 0,1% innihald árið 2015.
Reglugerðin er vegna samþykktar Sameinuðu
þjóðanna um umhverfisvænni sjóflutninga, sem framfylgt er af
Alþjóðasiglingamálastofnuninni (International Maritime Organization). Tilgangur
reglugerðarinnar er að gera skipaflutninga umhverfisvænni með því að draga
úr innihaldi brennisteins í brennsluolíu.

Þessar
breytingar munu auka olíukostnað sem hefur í för með sér hækkun á
umhverfisgjaldi (LSS). Sem fyrr mun umhverfisgjaldið þróast í takt við
olíuverð.
Samskipum er
afar umhugað um umhverfið og telja metnaðarmál að vera í fararbroddi þegar
kemur að því að taka upp nýja tækni og aðferðir sem draga úr umhverfisáhrifum
starfseminnar. Áherslan er lögð á hvernig koma megi vörunni á milli staða á sem
hagkvæmastan hátt fyrir viðskiptavini og umhverfið. Það er gert með því að
hámarka nýtinguna í flutningakerfunum þannig að orkunotkun á hverja
flutningseiningu sé lægri og einnig með því að nota sem hagkvæmust
flutningatæki. Samskip fylgjast grannt með tækniframförum og eiga í margvíslegu
samstarfi um tækniþróun í flutningum.
Nýtt LSS mun
taka gildi frá 15.desember og verður 153USD á TEU en hægt er að nálgast frekari
upplýsingar um reglur varðandi brennisteinsinnihald skipaolíu hér.
Ef þú óskar
eftir frekari upplýsingum vinsamlegast hafið samband við viðskiptastjóra þinn
eða þjónustudeild Samskipa.
Announcement
of changes to the LSS, December 2nd, 2019
Dear customer,
Rules regarding a 0.1%
maximum sulphur content of fuel oil in areas (Emission Control Areas – ECA)
were introduced in 2015. Samskip has collected the low sulphur surcharge (LSS)
environmental fee since.
As of January 1, 2020,
amended international rules on shipping fuel oil’s sulphur content outside of
ECA regions come into force. In those areas, the maximum sulphur content of
bunker fuel is limited to 0.5% instead of 3.5%. As mentioned, the changes apply
to regions outside the areas defined for 0.1% content in 2015.
The regulation is a
result of the United Nations Convention for the Prevention of Pollution from
Ships, enforced by the International Maritime Organization. The regulation’s
purpose is to make shipping more environmentally friendly by reducing sulphur
in bunker fuel.

These changes increase
fuel costs, resulting in a higher environmental fee (LSS). As before,
environmental fee changes follow oil price changes.
Samskip is very
concerned about the environment and prides itself of being at the forefront in
adopting new technologies and methods to reduce the environmental impact of its
operations. The focus is on transporting products between places in the most cost-effective
way available for both customer and the environment. This is done by maximizing
the utilization of the transport systems, reducing energy consumption per
transport unit, as well as by using the most efficient modes of transport.
Samskip closely monitors technological progress and takes part in a wide range
of technological development in shipping.
The new environmental
fee (LSS) will be USD 153 per TEU and will be valid as of 15th of
December 2019 . More information about the sulphur content of shipping
oil is accessible here.
Should you require
further information, please contact your Key Account Manager or Samskip’s
Customer Service





