Seinkun á komu Skaftafells og Mariu P

5 October 2016

Skaftafell (ferð 1640SKF) mun ekki hafa viðkomu á Sauðárkróki, Akureyri, Reyðarfirði, Kollafirði og Immingham, heldur sigla beint frá Reykjavík til Rotterdam og þaðan aftur til Reykjavíkur.

Maria P (ferð 1641MAR) mun hafa viðkomu á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri, Húsavík, Reyðarfirði, Kollafirði, Immingham og Rotterdam og þaðan aftur til Reykjavíkur.  

Áætluð brottför Skaftafells frá Reykjavík er föstudaginn 7.október til Rotterdam.  Áætluð brottför Mariu P (ferð 1641MAR) er mánudaginn 10. október á ströndina.

Sendingar sem  upphaflega voru bókaðar með Skaftafelli (ferð 1640SKF)  á ströndina, verða færðar yfir á Mariu P (ferð 1641MAR).

Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.