Samskip stóðu vaktina á Sjávarútvegsráðstefnunni í Hörpu

20 November 2019

Áhugaverðri og vel heppnaðri
Sjávarútvegsráðstefnu, þar sem Samskip voru meðal bakhjarla og fyrirtækja sem
kynntu starfsemi sína, lauk föstudaginn 8. nóvember síðastliðinn. Í ár var
haldið upp á tíu ára afmæli ráðstefnunnar og af því tilefni var sérstök áhersla
á hönnun kynningarefnis og kynningar á ráðstefnunni.

Fjölmargir notuðu tækifærið og
stöldruðu við í kynningarbás Samskipa á ráðstefnunni, enda veita Samskip
fyrirtækjum í sjávarútvegi mikilvæga þjónustu við útflutning á afurðum sínum,
auk alls annars inn- og útflutnings sem fyrirtækið annast. Í básnum tóku vel á
móti gestum þær Steinunn Jónasdóttir frá markaðsdeild Samskipa og Heiðrún
Arnsteinsdóttir frá útflutningsdeild.

Samskip veita sérhæfða þjónustu
við flutning á viðkvæmri kælivöru líkt og með víðfeðmu flutninganeti til Evrópu
og um heim allan er fyrirtækið í afburðastöðu til að veita
sjávarútvegsfyrirtækjum þá þjónustu sem þarf til að tryggja afhendingu á
gæðavöru inn á erlenda markaði. Í þeim efnum hafa gámaflutningar með ferskan
fisk til Evrópu verið í stórsókn og hafa Samskip meðal annars lagað
flutningakerfi sitt að þeirri þróun, og hafa að bjóða bæði þann sveigjanleika
og öryggi sem þarf til að koma kælivöru bæði hratt og örugglega á erlenda
markaði.

Áhugasamir um ráðstefnuna geta
kynnt sér hana á vef hennar, www.sjavarutvegsradstefnan.is,
en hún fer einnig fram í Hörpu á næsta ári, dagana 19. – 20. nóvember.