Samskip flytja í nýja starfsstöð í Færeyjum

29 January 2020

Með opnun ganganna verður Runavík í miðju
Færeyja. Aksturstími frá Runavík til Þórshafnar styttist úr klukkustund í 15
mínútur, sem er sambærilegt ferðatímanum á milli Kollafjarðar og Þórshafnar.
Sömuleiðis er Runavík nær útflutningsmörkuðum Færeyja, því varningur kemur
mestanpart frá norðurhluta eyjanna.

Runavík, sem er í Skálafirði, er næststærsta
borg Færeyja og sögð búa að bestu hafnarskilyrðum eyjanna með tilliti til
veðurfars og viðlegurýmis.

Starfsfólk Samskipa í Færeyjum hlakkar til
flutningsins á nýja starfsstöð með 700 fermetra vöruhúsi og 400 fermetra
skrifstofurými þar sem starfsmenn verða loks samaneinaðir undir einu þaki.

Starfsemi kæligeymslu Samskipa verður áfram í
Kollafirði.