Samskip breyta siglingaáætlun sinni

20 March 2020

Tímabundin breyting í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu Styður enn frekar við útflutning frá öllu landinu
beint til Evrópu
Aukin þjónusta
við innflutning á Norðurlandi

Samskip fækka skipum um
eitt í tímabundnum breytingum á millilandasiglingum fyrirtækisins. Í nýrri
siglingaáætlun sinna fjögur skip vöruflutningum á áfangastaði á landsbyggðinni
og í Evrópu. Siglingar samkvæmt nýrri áætlun hefjast 6. apríl næstkomandi.

Í nýju kerfi sinna
flutningaskipin Samskip Hoffell og Samskip Skaftafell siglingum á svonefndri
Strandleið þar sem siglt er vikulega frá Reykjavík norður og austur fyrir land,
þaðan til Hull í Bretlandi og svo áfram til Rotterdam í Hollandi áður en haldið
er aftur til Reykjavíkur.

Ný Strandleið mun hafa
vikulega viðkomu á Akureyri, en aðra hverja viku er komið við á Ísafirði,
Vopnafirði, Sauðárkróki og Reyðarfirði. 

Norðurleiðin er óbreytt
miðað við núverandi áætlun Samskipa. Þar sem flutningaskipin Arnarfell og
Helgafell halda áfram vikulegum siglinum frá Reykjavík til Rotterdam. Á
útleiðinni er komið við í Vestmannaeyjum og í Færeyjum, en á heimleiðinni frá
Rotterdam er viðkoma í Cuxhaven í Þýskalandi, Varberg í Svíþjóð, Árósum í
Danmörku og svo í Færeyjum.

Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa á
Íslandi:

„Ráðist er í
breytingarnar núna vegna óvissu sem uppi er í kjölfar heimsfaraldurs COVID-19.
Þær verða svo teknar til endurskoðunar þegar aðstæður leyfa. Með þessum
breytingum erum við að bjóða stysta flutningstíma frá strönd til Evrópu. Þannig
hefur tekist vel til við að viðhalda og auka þjónustu á innflutningssviði með því
að bæta tengingar við Norðurlandið.

Um leið og við leggjum
áherslu á að breytt áætlun hafi ekki áhrif á núverandi þjónustu við innflutning
á vörum til Íslands er lagt upp með að bæta enn frekar þjónustu við útflutning
frá landinu öllu með beinum siglingum frá útskipunarhöfnum á ströndinni á
markaði í Evrópu
.”

Nánari upplýsingar um
siglingaáætlun Samskipa og þjónustu við inn- og útflutning er að finna á vef
Samskipa:
www.samskip.is

Hér
má sjá nánari upplýsingar um innflutningsleiðir okkar í breyttri áætlun.

Hér
má sjá nánari  útflutningsleiðir okkar í
breyttri áætlun.