Búslóðaflutningar – til og frá Íslandi og innanlands

Samskip bjóða alhliða þjónustu í búslóðaflutningum, hvort sem flutningurinn er innanlands eða til og frá Íslandi. Við önnumst flutning frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda, hvar sem er í heiminum, og tryggjum faglega meðhöndlun og örugga afhendingu alla leið.

Þjónustufulltrúar okkar eru sérfræðingar í búslóðaflutningum og aðstoða viðskiptavini við að finna þá lausn sem hentar þeirra þörfum best. Við leggjum áherslu á persónulega þjónustu, skýra upplýsingagjöf og hnökralaust ferli frá upphafi til enda.

Hér fyrir neðan er að finna mismunandi flutningsþjónustu og yfirsýn yfir ferlið. Fyrsta skrefið er að fylla út og óska eftir tilboði í búslóðaflutninginn þinn með helstu upplýsingum og svo höfum við samband til baka. Viðskiptavinum er einnig ávallt velkomið að senda þjónustudeild okkar fyrirspurn í gegnum þjónustuspallið okkar ef einhverjar spurningar vakna.

Námsmenn og eldri borgarar njóta 15% afsláttar af sjóflutningi hjá Samskipum, innan Evrópu. Námsmenn þurfa eingöngu að framvísa staðfestingu um skólavist.

Reiknivél
fyrir búslóðir

Til að finna út ummál og magn búslóðar sem á að flytja.

Fá tilboð
í flutning

Form til að fylla út rafrænt og óska eftir búslóðaflutningi til eða frá landinu.

Samþykkja
tilboð

Eftir að tilboð berst frá okkur er hægt að staðfesta tilboðið til baka hér fyrir neðan.

Innanlands
akstur

Hægt er að óska eftir tilboð í innanlandsakstur heim að dyrum ef á þarf að halda.

Bílaflutningar – notaðir bílar

Móttaka ökutækja, bókun í skip og geymsla í útflutningshöfn

Áður en ökutæki er afhent Samskipum til útflutnings þarf sendandi að vera búinn að hafa samband við skrifstofu Samskipa og fá verðtilboð í viðkomandi flutning. Einnig þarf sendandi að bóka ökutækið í skip og afhenda nauðsynleg gögn til að hægt sé að flytja ökutækið.

Fólksbílar verða að hafa borist Samskipum í síðasta lagi á þriðjudögum.

Sendandi þarf að afhenda eftirfarandi:

  • Afrit af sölureikningi í þeim tilfellum þegar verið er að selja viðkomandi ökutæki.
    Sölureikningur þarf að innihalda eftirfarandi upplýsingar á ensku: Bíltegund og undirgerð, skráningarnúmer, verksmiðjunúmer bifreiðar og árgerð.

  • Skráningarskírteini bifreiðar. Ef umráðamaður er annar en skráður eigandi þarf sendandi að afhenda skriflegt útflutningsleyfi frá eiganda.

  • „Græna kortið“ sem er alþjóðlegt tryggingarskírteini. Sendandi þarf að útvega þetta skírteini frá sínu tryggingafélagi.

Sendandi er ábyrgur fyrir að afskrá ökutæki hjá Umferðarstofu.

Þegar ökutækið hefur verið bókað í skip og nauðsynleg gögn hafa verið afhent fær sendandi upplýsingar um hvar afhenda á ökutæki til lestunar í gám.

Ekki er leyfilegt að afhenda ökutæki til flutnings og hafa einhverskonar farm í ökutækinu, svo sem búslóð, föt, verkfæri o.fl.

Samskip/Jónar Transport annast útflutningsskjalagerð fyrir sendanda. Einnig er mögulegt að fá útgefið EUR-1 skírteini í þeim tilfellum sem þess er þörf. Sendandi er ábyrgur fyrir að afhenda öll gögn sem til þarf til þess að hægt sé að tollafgreiða.

Bifreið er ekki flutt úr landi fyrr en útflutningsheimild er veitt frá tolli.

Í flutningsgjöldunum er ekki innifalin trygging sem ábyrgist tjón í flutningi. Sendandi þarf sjálfur að kaupa tryggingu fyrir flutninginn.
Þjónustudeild Samskipa getur aðstoðað við kaup á tryggingum.

Erlendar skrifstofur Samskipa munu sjá um tollafgreiðslu bifreiða í erlendri höfn. Að tollafgreiðslu lokinni er bifreiðin tilbúin til afhendingar. Bifreið er geymd í vöruhúsi eða á plani þar til móttakandi sækir bifreiðina. Ef móttakandi sækir ekki bifreið á tilsettum tíma falla geymslugjöld á viðkomandi bifreið.

Greiða þarf fyrir flutning við afhendingu bifreiðar til Samskipa.

Skilmálar

Almennir skilmálar fyrir búslóðaflutninga með Samskipum. Ef þörf er á nánari upplýsingum erum við tilbúin til að aðstoða á netfanginu buslodir@samskip.com eða í síma 458-8000.

Skilmálar eru hluti af samningi á milli Samskipa og viðskiptavina.

  • Almennir flutningsskilmálar Samskipa gilda um flutninga á búslóðum og búslóðabílum og má finna á heimasíðu Samskipa.
  • Það er skylda að tryggja búslóð fyrir flutning. Flestir hafa heimilistryggingu á eigum sínum og er því jafn sjálfsagt að tryggja þær við flutning í bílum og skipum um heiminn. Starfsfólk Samskipa getur aðstoðað við kaup á tryggingum
  • Sendandi búslóðar ber ávallt ábyrgð á pökkun búslóðar. Í öllum tilfellum er mikilvægt að ganga vel frá fyrir flutning og pakka í kassa og setja pappa eða þykkt plast utan um húsgögn og tæki. Á stærri hlutum þarf að hlífa öllum hornum. Aðstoð við burð á búslóðum er ekki innifalin í verðum, hvorki á Íslandi né erlendis.
  • Einungis má vera ein búslóð skráð í heilgámaflutningum til og frá landinu.
  • Þegar um heilgáma, í útflutningi frá Íslandi, er að ræða ber eigandi búslóðar ábyrgð á að fá innsiglisvotta (farmvernd) hjá viðurkenndum aðilum.
  • Ekki er heimilt að setja búslóðir eða búslóðahluta inn í bíl í flutningi.
  • Skila þarf búslóð til Samskipa fyrir tilsettan lokunartíma vörumóttöku í hverju landi. Ef ekki næst að skila búslóð fyrir tilsettan lokunartíma, þá fer hún með næsta mögulega skipi. Lokunartími kemur fram á heimasíðu Samskipa undir hafnir og heimilsföng.
  • Í útflutningi frá Íslandi þarf að greiða fyrir flutning eigi síðar en tveimur dögum áður en skip leggur úr höfn. Búslóð er ekki lestað í skip nema greiðsla liggi fyrir.
  • Eigandi búslóðar þarf alltaf að sjá til þess að tollafgreiða búslóðina inn í viðkomandi land en lög um tollafgreiðslu eru mismunandi eftir löndum. Upplýsingar um tollareglur ýmissa landa má finna á heimasíðu Samskipa og tollembætta í viðkomandi löndum.
  • Í innflutningi til Íslands þarf heimild tollstjóra og greiðsla fyrir flutning að liggja fyrir, áður en flutningur er afhentur til búslóðaeiganda.
  • Þjónustustaðlar varðandi losun skips, afgreiðslu og aksturs eru mismunandi eftir löndum. Það er á ábyrgð eiganda búslóðar að fylgjast með komu skipa í viðkomuhöfn og setja sig í samband við skrifstofur Samskipa til að fá aðstoð við lokaskrefin í flutningaferlinu.
  • Samskip bjóða uppá akstur á gámum og lausavöru. Allar tímasetningar á akstri eru áætlaðar og geta breyst.
  • Eigandi búslóðar er ábyrgur fyrir því að flutningabíll komist að dyrum á ákvörðunarstað.
  • Losunar og hleðslutímar á gámum eru mismunandi eftir löndum en oftast 1-2 klukkustundir og er verðlagning miðuð við það í hverju landi.
  • Gámaleiga, stæðaleiga og geymslugjöld eru mismunandi eftir löndum en á Íslandi reiknast þessi gjöld sjö (14) dögum eftir að búslóðin kemur til landsins.

Algengar spurningar fyrir búslóðaflutninga

Hér fyrir neðan eru nokkrar af helstu spurningum og svörum sem gott er að lesa nánar um varðandi búslóðafluttninga hjá okkur.

Við byrjum á því að gefa viðskiptavinum tilboð í flutninginn en til þess þarf að fylla út tilboðsbeiðni á vefnum okkar. Vert er að benda á að ef flytja á búslóðina á brettum (lausavara, en ekki heill gámur) þarf þá að gefa upp rúmmetrafjölda í beiðninni þar sem tilboðin eru gefin eftir rúmmetrum.

Hér er búslóðareiknivél sem getur hjálpað til við að gefa þér hugmynd um stærð búslóðarinnar. Einnig getur verið gott að miða við 2 rúmmetra á hvert (euro) bretti/pallettu sem er þá lengd x breidd x hæð(0,8*1,2*2) og þá er pallettan inni í þeirri tölu.

20 feta gámur (20DC) er 26 rúmmetrar og 40 feta gámur (40HC) er 76 rúmmetrar.
Gott er að miða við að ef flytja þarf meira en átta (8) bretti, þá er 20 feta heilgámur oft betri og ódýrari kostur.

Þegar flutningur er pantaður þarf að gefa upp brottfarar- og áfangastað og hvort um flutning í heilum gámum eða lausavöru er að ræða. Einnig þarf að taka fram hvort óskað sé eftir að varan sé sótt og hvort óskað er eftir heimakstri á áfangastað. Þegar pantaður er flutningur fyrir lausavöru þá þarf umfang (rúmmál) vörunnar (búslóðarinnar) að liggja fyrir.

Óskið eftir tilboði í flutning, einnig er hægt að hafa samband við þjónustufulltrúa okkar eða hringja í síma 458 8000.

FCL er skammstöfun fyrir Full Container Load. Á íslensku er talað um heilgámasendingu og miðar þá við að búslóðin fari í 20ft eða 40ft gám.

LCL er skammstöfun á Less Than Container Load. Á íslensku er talað um lausavörusendingu og miðar þá við að búslóðin sé stöfluð á bretti. Búslóðin tekur þá einungis hluta af gámi.

20 feta gámur (20DC) er 26 rúmmetrar og 40 feta gámur (40HC) er 76 rúmmetrar.
Gott er að miða við að ef flytja þarf meira en átta (8) bretti, þá er 20 feta heilgámur oft betri og ódýrari kostur.

Já við bjóðum eldri borgurum og námsmönnum 15% afslátt af sjóflutningnum milli Íslands og okkar hafna í Evrópu. Námsmenn þurfa bara að sýna fram á staðfestingu um skólavist. Ekki er veittur afsláttur af öðrum flutningi ef hann er fyrir hendi, það er akstri eða öðrum áframflutningi í upphafi eða í lokin á ferlinu (hafi verið óskað eftir því).

Bílar með aftanívögnum (sideloaders) eru notaðir hér á Íslandi til þess að setja gámana niður á jörðina. Slíkir bílar eru sjaldgæfir erlendis og þess vegna þarf að borga sérstaklega fyrir þá þjónustu. Einnig er hægt að fá lengri tíma til þess að losa/hlaða gáminn en þá er algengast að hver klukkustund kosti aukalega.

Fáðu nánari upplýsingar hjá þjónustudeild Samskipa varðandi verð og tíma sem þú hefur erlendis til þess að losa/hlaða gáminn.

Hægt er að fylgjast með siglingaáætlun okkar með komum og brottförum skipa og þannig finna hentugustu siglinguna til og frá landinu.

Siglingaáætlun 
Samskipa.

Einungis má vera ein búslóð skráð í heilgámaflutningum (FCL) til og frá landinu.

Það er mismunandi eftir löndum, en alltaf þarf að fylla út innihaldslista. Útfylling á tollskýrslu í viðkomandi landi fer eftir reglum á áfangastað. Fáðu nánari upplýsingar hjá þjónustufulltrúa Samskipa um hvað þarf að fylla út.

Ef um flutning frá Íslandi er að ræða greiðist flutningurinn áður en skipið fer frá landi. Ef greiðsla hefur ekki borist fer búslóðin ekki með skipinu.

Ef um flutning til Íslands er að ræða greiðast flutningsgjöld áður en búslóðin er afhent.

Það er mismunandi – hafðu samband við tryggingafélagið þitt og fáðu upplýsingar um það hvort farmtrygging sé hluti af þinni heimilistryggingu.

Hvað er farmvernd?
Allir vörugámar sem fermdir eru hér á landi til útflutnings skulu vera innsiglaðir með svokölluðu flöskuinnsigli. Bent er á pökkunarfyrirtæki og Tollstjórann í Reykjavík hvað varðar vottun á flutningi heimilismuna. Samskip veita ráðgjöf hvað þetta varðar.

Já, Samskip geta haft milligöngu um tryggingar búslóða og búslóðabíla hjá Sjóvá. Skylda er að búslóðin sé tryggð í flutningi hvort sem Samskip hafa milligöngu um tryggingar eða ekki.

Ef Samskip sjá um tryggingar þá er iðgjald 0,75% af heildarverðmæti búslóðarinnar, lágmark ISK 3.000 og er sjálfsábyrgðin ISK 25.000.

Nei, Samskip sjá ekki um þá þjónustu.

Pökkun og flutningar ehf sjá um að farmvernda búslóðagáma og innheimta þeir þann kostnað. Vert er að benda á að Samskip sækja ekki fulla búslóðagáma til útflutnings fyrr en búið er að innsigla og farmvernda gáminn.

Búslóðin ætti að vera tollfrjáls ef viðkomandi hefur haft fasta búsetu í landi sem er flutt úr í a.m.k. 12 mánuði fyrir búferlaflutning. Ef búslóðarmunir eru nýir, þá verður að tollafgreiða þá sérstaklega og getur þjónustudeild okkar aðstoðað viðskiptavini við það ferli.

Ekki er leyfilegt að flytja aðra hluti í bílnum en þá sem tilheyra bifreiðinni. Þar af leiðandi er ekki heimilt að setja búslóðina í bifreið sem Samskip flytja.

Ef Samskip hafa milligöngu um tryggingu á búslóðinni þá skaltu vinsamlegast byrja á að hafa samband við okkur í Þjónustudeild til að fá skjöl sem þarf til þess að þú getir svo fyllt út flutningstjónabeiðni inn á sjova.is. Starfsmaður frá Sjóvá hefur samband við tjónþola varðandi næstu skref.

Í flestum tilfellum þarf þess ekki en þess má þó geta að ef um lausavörusendingu er að ræða verður alltaf greitt fyrir þann rúmmetrafjölda sem búslóðin mælist. Erfitt getur verið að áætla nákvæman rúmmetrafjölda en þess vegna er búslóðin alltaf mæld í vöruhúsinu er greitt samkvæmt mælingum.

Ef viðskiptavinur hefur hugsað sér að fá gáminn niður á jörð eða er lengur að losa/hlaða gáminn erlendis þá bætast aukagjöld við upphaflega tilboðið en allar upplýsingar um þann kostnað er að finna á tilboðinu.

Gámaleiga og geymslugjöld geta einnig fallið til, en búslóða viðskiptavinir hafa 14 daga fría frá komu skips. Hægt er að fá gáminn að heimili á Íslandi sjö (7) dögum fyrir brottför skips án þess að greiða gámaleigu.

Nei, Samskip bjóða ekki upp á slíka þjónustu.

Samskip á Íslandi útvega bretti og plast (þetta á ekki við í erlendum höfnum), en sjá ekki um að hlaða á brettin eða fylla í gám fyrir viðskiptavini.
Starfsfólk þjónustudeildar Samskipa geta bent á trausta aðila til þess að sjá um pökkun og burð hér innanlands. Við höfum ekki tengilið erlendis sem sjá um pökkun búslóða.

Ef búslóðin er sótt og sett í flutningabíl er nauðsynlegt að fá upplýsingar hjá þjónustudeild um hvort búslóðin þurfi að vera plöstuð á brettum eða ekki, en það er mismunandi eftir löndum.

Áður en búslóðin er afhent þarf að fá tollafgreiðslu og greiða fyrir flutninginn. Til þess að tollafgreiðslan geti farið fram þarf að skrá viðkomandi inn í landið hjá Þjóðskrá Íslands og skila útfylltri búslóðayfirlýsingu, innihaldslista og komutilkynningu inn til Jóna Transport eða Tollstjóra.

Algengur afgreiðslutími hjá tollayfirvöldum eru einn til tveir sólarhringar en getur þó tekið lengri tíma.

Þú getur flutt búslóðina þína án þess að skrá þig inn í landið en þá gætir þú þurft að borga toll af búslóðinni.

Til þess að búslóðin sé tollfrjáls þarftu að skrá lögheimilið til Íslands.

Það er hægt að nota sinn eigin gám í flutninga á milli landa en CSC-vottun á gámnum þarf að liggja fyrir.
Það er gert með því að senda okkur mynd af CSC plötu gámsins.

Almennt gildir að tilboð frá Samskipum gildi í tvo (2) mánuði frá því að það er gefið.

  • Þjónustudeild búslóðaflutninga

    Þjónustudeild búslóðaflutninga

    Þjónustufulltrúar / Customer Representatives

    Þjónustufulltrúar / Customer Representatives