
Áætlun heldur þótt tvö skip fari í slipp
28 janúar 2020
Tvö skip Samskipa, Arnarfell og Helgafell, eru á leið í
slipp í næsta mánuði.
Byrjað verður á Arnarfelli sem fer til Danmerkur í slipp frá
Rotterdam 3. febrúar næstkomandi þar tekur Samskip Endurance við siglingunni á
meðan og tekur yfir áætlun Arnarfells og síðar Helgafells.
Síðan er gert ráð fyrir að Helgafellið fari í slipp 24.
febrúar líkt og Arnarfellið.
Einu áhrif þessara tilfærslna verð á siglingar meðfram
ströndinni, en þar dettur út ein vika um mánaðamótin janúar/febrúar.





