Breytingar á rekstri starfsstöðvar Samskipa á Ísafirði

26 apríl 2019

Glanni mun taka við rekstrinum frá og með 1. maí n.k. Við þessar breytingar voru þrír af fimm starfsmönnum Samskipa á Ísafirði ráðnir til starfa hjá Glanna. Við hjá Samskipum þökkum starfsmönnum okkar fyrir vel unnin störf og óskum þeim velfarnaðar.  

Þjónusta við viðskiptavini Samskipa á Vestfjörðum mun ekkert breytast, við þessar breytingar í rekstri og munu Samskip halda áfram að veita viðskiptavinum sínum á svæðinu góða þjónustu.

Við hlökkum til frekara samstarfs við Bjarna og Agnar sem verður örugglega báðum fyrirtækjunum til hagsbóta sem og viðskiptavinum Samskipa á Vestfjörðum.