
Breytingar gerðar á áætlun Samskipa
21 febrúar 2020
Tafir vegna óveðurs unnar upp – Áætlun strandleiðar nú móti sólu – Tími til móttöku gáma í Rotterdam verður rýmri – Breytingar á suðurleið – Rýmri tími fyrir útflutningsviðskiptavini
Tvíþættar breytingar eru fyrirhugaðar á siglingaáætlun
Samskipa. Annars vegar er tímabundin breyting á áætlun til að vinna upp tafir
sem urðu vegna óveðurs sem gekk yfir landið í síðustu viku. Hins vegar er
tilhögun Strandleiðar Samskipa breytt og siglingaáætlun
Suðurleiðar tekur breytingum en með því gefst meira rými til
vöruafhendingar í Rotterdam en verið hefur.
Til að vinna upp tafir á áætlun flutningskipsins Samskip
Endurance, vegna óveðursins í síðustu viku, hafa Endurance og Samskip Skálafell
hlutverkaskipti í einni ferð þannig að Samskip Skálafell komi við í Þýskalandi,
Danmörku og Svíþjóð á leiðinni til Reykjavíkur.
Samskip Endurance (ferð 2009END) heldur beint til
Reykjavíkur frá Rotterdam, á meðan Samskip Skálafell (ferð 2009SKA) siglir frá
Rotterdam með viðkomu í Cuxhaven, Árósum og Varbergi áður en komið er til
Reykjavíkur.
Eftir þessar ferðir eru bæði skip komin á sína reglubundnu
áætlun. Breytingunni fylgir hins vegar að ekki verður komið við í Kollafirði á
norðurleið Skálafells (ferð 2009SKA) og seinni viðkoma í Hull fellur niður hjá
Endurance (ferð 2009END).
Samskip kynna líka nýja siglingaáætlun Strandleiðar
félagins, en henni sinnir flutningaskipið Samskip Hoffell. Frá og með viku 9
(ferð 2010HOF) verður siglt á móti sólu umhverfis landið með viðkomu í öllum
höfnum aðra hvora viku. Áætlunin er Reykjavík-Kollafjörður-Reyðarfjörður-Vopnafjörður-Akureyri-Sauðárkrókur-Ísafjörður-Bíldudalur-Reykjavík.
Uppfærsla siglingaleiðarinnar felur einnig í sér breytingu á
áætlun Suðurleiðar Samskipa. Frá og með viku 10 á Suðurleið, verður lagt upp
frá Íslandi kl. 16 á föstudögum og komið til Hull að kvöldi mánudags. Seinni
viðkoma til Hull fellur niður og sinnir þá mánudags viðkoman því bæði inn- og
útflutningi.
Við breytinguna færist brottför frá Rotterdam aftar en áður
þannig að ráðrúm til vöruafhendingar verður meira. Í uppfærðri siglingaáætlun
Suðurleiðar er lagt upp frá Rotterdam kl. 01 á aðfararnótt fimmtudags. Þar
verður því hægt að taka á móti gámum á miðvikudögum.
ENGLISH
Notice about changes in Samskip’s schedule
Delays due to storm corrected – New schedule for Coastal Route – More
time to deliver containers in Rotterdam – More time for export customers
Samskip has
planned changes to its schedule. One is a temporary change to counter delays
due to the storm that ravaged Iceland last week. The other is a permanent
change to Samskip’s Coastal Route and amendment to the Southern Route, allowing
for more time to deliver goods for transportation in Rotterdam than previously
possible.
To
counteract delays in Samskip Endurance’s schedule from the storm last week the
vessels Samskip Endurance and Samskip Skalafell are going to swap places for
one voyage, with Samskip Skalafell calling on ports in Germany, Denmark and
Sweden on its route to Reykjavik.
Samskip
Endurance (voyage 2009END) will call on Rotterdam before sailing directly to
Reykjavik. Samskip Skalafell (voy 2009SKA) will sail from Rotterdam and
call on Cuxhaven, Aarhus, Varberg and Reykjavik.
After those
voyages, Samskip Endurance and Samskip Skalafell will fall back to their normal
schedule. However, due to the change, Samskip Skalafell will not be calling on
Kollafjörður (voyage 2009SKA), and there will be no second call to Hull with
Samskip Endurance (voyage 2009END).
Samskip is
also introducing a new shipping schedule for its Coastal Route, serviced by
Samskip Hoffell. Beginning in week 9 (voyage 2010HOF) the coastal service will
be counterclockwise visiting all ports bi-weekly. The schedule is
Reykjavik-Kollafjordur-Reydarfjordur-Vopnafjordur-Akureyri-Saudarkrokur-Isafjordur-Bildudalur-Reykjavik.
The revised
schedule also entails change to Samskip’s Southern Route. As of week 10, the
Southern Route will depart from Iceland on Fridays at 16:00 and arrive in Hull
on Monday evenings. As a result, there will be no second call to Hull, meaning
that the call on Mondays will be both for export and import.
Due to this
change, the Southern Route departure from Rotterdam is pushed back from where it
previously was resulting in more time for the delivery of goods for
transportation. The updated Southern Route schedule has departures from
Rotterdam at 01:00 Thursdays, opening up for the delivery of FCL containers on
Wednesdays.





