„Ég hef fengið mörg skemmtileg tækifæri hjá Samskipum“

Þorkell Kristinsson viðskiptastjóri hjá útflutningsdeild Samskipa hóf ferilinn í gámaþvotti þegar hann var í menntaskóla. Í dag hefur hann lokið BSc í viðskipafræði frá Háskólanum í Reykjavík og Meistaragráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands.

„Ég hef fengið mörg tækifæri til að vaxa og dafna í starfi
hjá Samskipum og fengið tækifæri og traust frá stjórnendum til að spreyta mig í
fjölbreyttum verkefnum. Það hefur styrkt mann mikið í að sækja frekar fram,“
segir Þorkell.

„Í dag er ég viðskiptastjóri útflutningsdeildar. Við seljum
flutningaþjónustu á markaði til fiskiviðskiptavina og annarra sem stunda
útflutning frá Íslandi. Við leitum ávallt nýrra tækifæra. Það er mjög gaman og
spennandi að vera í tengslum við okkar viðskiptavini og maður fær að ferðast um
Ísland í leiðinni og hitta fólk sem er virkilega gaman fyrir mann eins og mig.“

Þorkell segir enn fremur að vægi sé mikið í verði per gám en
það sem skipti auknu máli í dag sé allt auka verðmæti og það sé fyrst og fremst
þjónustan sem Samskip veiti. „Það er ótrúlega mikilvægt að finna lausnir fyrir
daglegan rekstur fyrirtækjanna,“ segir Þorkell.

Þorkell segir suma viðskiptavini vilja vera á því sem kallað
er „spotmarkaður“ en þar er unnið vikulega í því að finna lausnir fyrir
viðskiptavini sem gerir það að verkum að um náið samband er að ræða við
viðskiptavininn til að finna leiðir til að þjónusta hann. „Það er mikilvægt á
spotmarkaði að vera fljótur að hugsa og teikna upp lausnir fyrir þau fyrirtæki
sem leita til okkar. Það getur oft verið krefjandi að koma upp með lausnir enda
eru þarfir fyrirtækja mismunandi. Í þessum viðskiptum er mikilvægt að lausnir
séu skýrar og viðskiptavinurinn getur treyst því að Samskip komi hans vöru á
áfangastað,“ segir Þorkell.

Viðskiptavinir kveikja á að Samskip eru umhverfisvænni kostur

Samskip leiða í Evrópu í visthæfari flutningum og Þorkell
segir að viðskiptavinir séu að kveikja á því að val á Samskipum sé það sem hann
kallar „go green“. „Við þurfum að vera duglegri að segja frá því að Samskip sé
að hugsa um sín kolefnisfótspor og við séum að nota okkar flutningskerfi í
Evrópu sem byggist upp á því að draga úr kolefnislosun. Neytendur hugsa enn
mikið í krónum en þetta er aðeins að breytast og vægi umhverfismála að aukast.
Samskip eru grænni kostur vissulega en það þarf dálítið að útskýra fyrir
viðskiptavinum af hverju það skiptir þá líka máli. Það getur opnað á ný
tækifæri fyrir okkar viðskiptavini að við séum að draga úr kolefnislosun. Þetta
skiptir auðvitað alla máli þegar öllu er á botninn hvolft að hugsa um
umhverfið, það er „win win“ fyrir alla,“ segir Þorkell.

„Meðvitund um grænni kosti vex eftir því sem við tölum meira
um þetta. Og þetta er klárt forskot sem við höfum á aðra. Við erum með
vistvænni flutninga og þetta skiptir t.d. útflytjanda sem er að selja vöru í
súpermarkað í París eða Berlín verulega miklu máli. Við þurfum að halda þessu á
lofti sjálf í samskiptum okkar við viðskiptavini.“

Hefur ekki sagt mörgum frá því að hann elskar kántrítónlist

Að lokum er Þorkell spurður um áhugamálin. Hann segist vera
Manchester United maður og Frammari þótt hann hafi ekki fylgst vel með síðan
liðið fór niður í fyrstu deild.

„Ég hef líka hrikalega gaman af því að veiða. Fer á
Þingvallavatn á árabát og veiði bleikju og urriða, þar eyði ég mörgum
kvöldstundum. Ég fer oft beint upp í sveit eftir vinnu og er kominn heim um
miðnætti. Svo hef ég líka svona áhugamál sem fáir vita um, en ég er sem sagt
mikill kántrí-aðdáandi. Við erum samt nokkrir hérna í Samskipum sem deilum
þessu áhugamáli. Ég er einmitt núna að hlusta á The Highwaymen í bílnum,“ segir
Þorkell.

„Ég elska hvað það er góður andi í vinnunni. Gaman að mæta á
morgnana og allir að vinna í sömu átt. Við erum öll að dansa línudans hérna í
vinnunni og við gerum það alveg ótrúlega vel,“ segir Þorkell að lokum.

Saman náum við árangri.