Fiskidagurinn mikli tókst vel að vanda

Samskip hafa frá upphafi stutt á margvíslegan máta við fjölskylduhátíðina Fiskidaginn mikla á Dalvík. Í ár fór hátíðin fram dagana 8. til 11. ágúst. Væntingar um fjölda gesta gengu eftir þrátt fyrir óhagstæða veðurspá, sem reyndist einnig óþarflega svartsýn. Um er að ræða eina af mest sóttu fjöldahátíðum landsins og talið að á milli 27 og 28 þúsund manns hafi sótt Dalvík heim um helgina.

 

Fiskidagurinn mikli fer ávallt fram á Dalvík helgina eftir verslunarmannahelgi ár hvert og koma þá til bæjarins gestir hvaðanæva að til að samgleðjast heimafólki. Í stórum dráttum er dagskráin með hefðbundnu sniði, fiskisúpukvöld á föstudeginum og á laugardegi fer fram skemmtidagskrá sem endar með stórtónleikum og flugeldasýningu um kvöldið.

Grunnhugmyndin að Fiskideginum mikla snýst um að Dalvíkingar bjóða öðrum landsmönnum í mat með þannig fyrirkomulagi að enginn þurfi að taka upp veskið, en aldrei hefur verið rukkað fyrir aðgang að hátíðinni, hvorki mat né skemmtiatriðum.

Aðkoma Samskipa að hátíðinni hefur verið allnokkur frá upphafi, en félagið flytur og hýsir obbann af matvælum og frystivöru fyrir hátíðina, auk sviðsbúnaðar og tækja sem notuð eru á svæðinu. Eins leggur fyrirtækið lið við undirbúning á hátíðarsvæðinu og á meðan á hátíðinni stendur, svo sem við uppsetningu á skjólvegg úr gámum við Hafnarvogina þar sem stóra útigrillið er og með því að geyma við fiskasýninguna, sem þarf að vera frosin fram að sýningu. Eins hafa Samskip aðstoðað við að afmarka götur og hátíðarsvæði með tækjum, bílum og flutningavögnum, auk þess að aðstoða við uppsetningu á smærra sviðnu sem notað er á sjálfan hátíðardaginn.

Í umfjöllun Morgunblaðsins um hátíðina í ár kemur fram að núna hafi í fyrsta sinn verið hærra aldurstakmark á tjaldsvæðinu, eða 20 ár, og haft eftir Júlíusi Júlíussyni, framkvæmdastjóra Fiskidagsins mikla, að það hafi gefið góða raun. Sami háttur verði líklega hafður á á næsta ári.