Glænýr gámakrani tekinn í notkun

Samskip hafa tekið í notkun glænýjan gámakrana á hafnarsvæði fyrirtækisins í Reykjavík. Tímamótunum er fagnað ákaflega hjá Samskipum enda eykur nýr krani rekstraröryggi í Reykjavík til muna.

Kraninn er af gerðinni Liebherr 550 og engin smásmíði. Hæð hans nemur 41 metra og stjórnhús hans í 29 metra hæð. Þá keyrir hann á 72 dekkjum, en ekki veitir af því þyngd kranans er 425 tonn. Lyftigeta kranans er einnig umtalsverð, eða 104 tonn út í 25 metrum og 50 tonn í 36 metrum, en bóma kranans nær út 54 metra. 

Hægt að keyra á rafmagni
Þá er kraninn þannig útbúinn að með litlum viðbótum er hægt að tengja hann við háspennu og gera hann umhverfisvænan með því að hann gangi fyrir rafmagni, innlendum og endurnýjanlegum orkugjafa. Uppi eru áætlanir hjá Faxaflóahöfnum um að háspennutengja hafnarkantinn og verður kraninn tengdur við rafmagn jafnskjótt og það verður mögulegt.

Kraninn kom til Íslands nánast fullsamsettur frá Þýskalandi með ekjufarmskipinu Meri. (Sumum er tamara að tala um RoRo-skip, en RoRo vísar til þess að farmi er ekið um og frá borði, Roll on Roll off). Kraninn var keyrður um borð í Rostok í Þýskalandi og frá borði í Reykjavík. Gamli kraninn, sem er frá 1998, var svo fluttur með sama skipi til Færeyja þar sem hann hefur þegar verið tekinn í notkun á gámasvæði Samskipa í Runavík.

Birkir Hólm Guðnason, forstjóri Samskipa á Íslandi:
„Í gámakrana sem þessum er mikil en um leið mikilvæg fjárfesting sem tryggir áreiðanleika þjónustu Samskipa við lestun og losun í Reykjavík. Um leið styður fjárfestingin við umhverfismarkmið Samskipa, bæði með því að nýrri og fullkomnari tæki eru hagkvæmari í rekstri og eins með því að hægt verður að keyra kranann á rafmagni þegar slíkum tengingum verður komið á við höfnina. Um leið er ánægjulegt gamli kraninn heldur áfram þjónustu við fyrirtækið í Færeyjum og styður þar við afköst og þjónustu á nýrri starfsstöð Samskipa þar.“ 
​​​​​​​
Frekari upplýsingar veitir: 
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa: thorunn.inga.ingjaldsdottir@samskip.com