Samskip leita réttar síns í Hollandi

Lögmenn Samskipa í Hollandi undirbúa nú aðgerðir
á hendur Kloosbeheer,
fyrirtæki í eigu Kloosterboer fjölskyldunnar sem á og rekur frystigeymslur í
Hollandi og framkvæmdastjóra þess sem jafnframt er einn af eigendum fyrirtækisins.

Þetta er gert vegna skaða sem þessir aðilar ollu Samskipum þann tíma sem frystigeymslan Klosterboer IJmuiden var í eigu Samskipa.

Aðgerðir Samskipa koma í kjölfar úrskurðar hollenskra samkeppnisyfirvalda um samráðsbrot sem bæði Kloosbeheer og framkvæmdastjórinn hafa gengist við. Fleiri fyrirtækjum í eigu Kloosterboer fjölskyldunnar og stjórnendum þeirra hefur einnig verið gert að greiða háar fjársektir vegna samráðs.

Samkvæmt ákvæðum í hollenskum lögum er ekki hægt að innheimta hærri sektargreiðslu frá fyrirtækjum en sem nemur 10% af veltu þeirra. Sekt Kloosterboer IJmuiden fór yfir þau mörk og því krefjast hollensk samkeppnisyfirvöld þess að Samskip í Hollandi greiði mismuninn en Samskip keyptu IJmuiden frystigeymsluna af Kloosterboer fjölskyldunni árið 2005 en seldu fjölskyldunni hana til baka árið 2009.

Samskip hafa þegar áfrýjað þessari niðurstöðu hollenskra samkeppnisyfirvalda þar sem félagið er ekki aðili að málinu sem beinist gegn samráðsbrotum Kloosterboer fjölskyldunnar sem á og rekur fjölda sérhæfðra frystigeymslna. Samskip drógust inn í rannsókn hollenskra samkeppnisyfirvalda sem beindust að háttsemi fyrirtækja fjölskyldunnar sem eru alls óviðkomandi Samskipum.