Samskip tilnefnd til Menntaverðlauna atvinnulífsins 2014

Samskip hafa verið tilnefnd til menntaverðlauna atvinnulífsins í flokki Menntafyrirtæki ársins 2014, verðlaunin verða veitt í fyrsta sinn mánudaginn 3. mars á Hilton Reykjavík Nordica.

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða veitt í fyrsta sinn mánudaginn 3. mars á Hilton Reykjavík Nordica til fyrirtækja sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fjögur fyrirtæki eru tilnefnd sem Menntafyrirtæki ársins og fjögur fyrirtæki eru tilnefnd sem Menntasproti ársins.

Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, mun tilkynna um hverjir hljóta verðlaunin á Menntadegi atvinnulífsins en SA, LÍÚ, SVÞ, SF, SFF, SI, Samorka og SAF efna til menntadagsins sem stendur frá kl. 13-16.30 á Nordica. Menntun og fræðsla sem nýtist öllu atvinnulífinu verður þar í kastljósinu en þetta er í fyrsta sinn sem fulltrúar ólíkra atvinnugreina halda sameiginlegan menntadag.

Eftirfarandi fyrirtæki eru tilnefnd sem Menntafyrirtæki ársins 2014:

  • Samskip
  • Isavia
  • Landsbankinn
  • Rio Tinto Alcan á Ísland

Tilnefnd fyrirtæki leggja öll áherslu á mikilvægi menntunar og hafa skýra mennta-og fræðslustefnu sem er fylgt eftir. Við mat á tilnefningum voru gæði fræðslunnar metin og kannað hvort mennta- og fræðslustefnan hafi eflt menntun innan fyrirtækjanna og aukið samkeppnishæfni þeirra.

Eftirfarandi fyrirtæki eru tilnefnd sem Menntasproti ársins 2014:

  • Codland
  • Landsnet
  • Leikskólinn Sjáland
  • Nordic Visitor

Tilnefnd fyrirtæki hafa öll í rekstri sínum lagt aukna áherslu á fræðslu- og menntamál. Við mat á tilnefningum var skoðað hvort farnar hafi verið nýjar leiðir við eflingu menntunar innan fyrirtækjanna og þátttöku starfsmanna í fræðslustarfinu.

Í dómnefnd sátu Hildur Elín Vignir, framkvæmdastjóri IÐUNAR - fræðsluseturs, Steinn Logi Björnsson stjórnarformaður Bláfugls, Þorsteinn Ingi Sigfússon, forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands og Ingibjörg Elsa Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins.

Samtök atvinnulífsins og aðildarsamtök þeirra þakka þeim fjölmörgu sem sendu inn tilnefningar til Menntaverðlauna atvinnulífsins. Fyrirtækin sem eiga möguleika á að hljóta Menntaverðlaun atvinnulífsins 2014 verða kynnt rækilega á vefnum í næstu viku í sérstökum sjónvarpsinnslögum sem verið er að taka upp þessa dagana en fyrirtækjunum var tilkynnt um niðurstöðu dómnefndar í byrjun vikunnar.

Dagskrá Menntadags atvinnulífsins má nálgast hér að neðan en ráðstefnan er öllum opin og er ekkert þátttökugjald.

Hér er einnig hægt að sjá myndbandsbrot frá Samskipum sem sýnir vel hvað menntastefna okkar er skýr og greinileg.

Smelltu hér til að sækja dagskrá Menntadags atvinnulífsins 2014