Varðskipið Þór dregur Samskip Hoffell til Reykjavíkur

Um hádegisbil í dag, sunnudaginn 10. janúar, varð Samskip Hoffell vélarvana um 160 sjómílum suðvestur af Færeyjum á leið til Íslands. Helgafell, skip Samskipa, er við Hoffellið og í samskiptum við áhöfn þess.  Varðskipið Þór mun draga Hoffellið til hafnar í Reykjavík.

Ekki þótti ástæða til að lýsa yfir neyðarástandi um borð í Hoffellinu þótt áhöfninni hafi ekki tekist að ræsa vélar skipsins að nýju. Áætlað er að varðskipið Þór nái til Hoffellsins á þriðjudaginn.

Samskip Hoffell er 5.500 tonna gámaskip. Í áhöfn þess eru 13 manns og amar ekkert að þeim. Á svæðinu eru ANA 8-10 vindstig og um 6-7 metra ölduhæð.