Heildarþjónusta í flutningum
Samskip bjóða fjölþætta flutnings- og þjónustulausnir sem styðja við rekstur fyrirtækja þvert á atvinnugreinar. Með samþættu flutningsneti á sjó og landi, sérhæfðri þjónustu og sérþekkingu á ólíkum vöruflokkum tryggjum við skilvirkar lausnir, frá upphafi til enda.
Við þjónustum fjölbreyttar atvinnugreinar, allt frá sjávarútvegi, matvælum og drykkjarvöru til byggingariðnaðar, stóriðju, bifreiðainnflutnings, endurvinnslu og sérhæfðra verkefna. Hvort sem um er að ræða reglubundna flutninga, vöruhýsingu, dreifingu eða flókin sérverkefni, leggjum við áherslu á lausnir sem laga sig að þörfum hvers viðskiptavinar.
Með áreiðanleika, reynslu og nýsköpun að leiðarljósi vinnum við í nánu samstarfi við viðskiptavini að því að einfalda aðfangakeðjur, bæta yfirsýn og skapa virði í daglegum rekstri.
Sérfræðiþekking
Sérþekking og áralöng reynsla í flutningum þvert á atvinnugreinar, sem gerir Samskip að traustum samstarfsaðila.
Öflugt flutningsnet
Samþætt flutningsnet innanlands og erlendis sem tryggir skilvirkar lausnir frá upphafi til enda.
Áreiðanleiki
Við tryggjum að vörur viðskiptavina berist á öruggan, skilvirkan og áreiðanlegan hátt – á réttum tíma.
Persónuleg þjónusta
Við leggjum áherslu á náið samstarf og persónulega þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar.
Tollskjalagerð
Samskip geta aðstoðað viðskiptavini með tollaafgreiðslu og tollamál á sendingum. Margir viðskiptavinir kjósa að tollaafgreiða sínar sendingar sjálfir en þeir sem óska geta fengið Samskip og Jóna Transport til að sjá um heildarflutning til og frá landinu.
Það getur verið flókið að þræða sig í gegnum tollamál, til dæmis milli efnahagssvæða frá upphafsstað til áfangastaðar, og þá kemur sérfræðiþekking okkar vel að notum.
Viðskiptavinir geta haft samband við sinn viðskiptastjóra eða tengilið fyrir frekari upplýsingar.


Jónar Transport
Jónar Transport er dótturfyrirtæki Samskipa og er alhliða flutningsmiðlari sem býður upp á víðtæka þjónustu tengda inn- og útflutningi. Jónar Transport eru einnig sérfræðingar í flóknum, sérhæfðum flutningum og í lyfjaflutningum.
Jónar Transport veita alhliða þjónustu í flugflutningum og geta veitt alla þjónustu sem snýr að útflutningi hvort sem um er ræða almenna flugfrakt eða hraðsendingar og eru í samstarfi við öll flugfélög sem fljúga frá Íslandi. Það tryggir bestu flutningslausnina!
Jónar Transport eru sérfræðingar að halda utanum umfangsmikil sérverkefni sem tengjast m.a. stórtónleikum, kvikmyndaiðnaði, auglýsingaiðnaði, ráðstefnum og sýningum hér á landi.
Þjónusta sem við bjóðum viðskiptavinum

Þjónusta við flutningsaðila
Þjónustudeild veitir skjóta og persónulega þjónustu og aðstoðar við að sendingar og skjöl skili sér á réttan stað á réttum tíma.
Tollskýrslugerð
Samskip og Jónar Transport annast tollskýrslugerð fyrir viðskiptavini, allt eftir þörfum og eðli sendinga
ATA Carnet og EDI tengingar
Umsjón með ATA Carnet sendingum ásamt EDI-tengingum beint við kerfi viðskiptavina til aukinnar skilvirkni og hraðari afgreiðslu
Bráðabirgða tollafgreiðsla
Við aðstoðum við undirbúning og afgreiðslu sendinga til og frá landinu, með aðgang að toll- og frísvæðum á hafnarsvæði okkar
Hættulegur varningur
Sérhæfðar flutningslausnir fyrir efnavörur og hættulegan varning, þar á meðal eldfiman og sérleyfisskyldan varning (ADR)
Þjónusta og ráðgjöf
Reynslumikið þjónustuteymi veitir persónulega ráðgjöf og lausnir sem styðja við flutningsþarfir viðskiptavina
Farmbréf og skjöl
Umsjón og frágangur farmbréfa og tilheyrandi skjala í samræmi við kröfur um efnavörur og hættulegan varning (ADR)














