Öflugt flutningskerfi fyrir erlenda markaði

Við höfum um árabil verið traustur samstarfsaðili íslenskra útflutningsfyrirtækja. Með sterkum viðskiptasamböndum, mikilli sérþekkingu og sveigjanlegu flutningsneti tryggjum við skilvirkan og öruggan útflutning frá Íslandi til markaða víðs vegar um heiminn. Strandsiglingar eru kjarninn í útflutningsneti okkar og skapa áreiðanlegar tengingar við helstu hafnir innanlands og erlendis.

Starfsfólk Samskipa býr yfir sérþekkingu á útflutningi á sjávarútvegsafurðum, hvort sem um er að ræða ferskar, saltaðar eða frosnar afurðir, sem og skreið. Þá höfum við einnig flutt stóriðjuafurðir, hráefni til endurvinnslu og þurrvöru úr landi fyrir viðskiptavini okkar í áratugi.

Á útflutningssviði starfar teymi sérfræðinga sem leggur ríka áherslu á að þekkja þarfir hvers viðskiptavinar. Við aðstoðum viðskiptavini okkar við að senda verðmæti frá Íslandi og veitum heildstæða þjónustu sem nær yfir alla þætti útflutnings, frá ráðgjöf til framkvæmdar.

Sjávarútvegur og atvinnulífið

Starfsfólk Samskipa býr yfir sérþekkingu á útflutningi á sjárvarútvegsafurðum,
hvort sem það eru ferskar afurðir, saltaðar, frosnar afurðir eða skreið

Stóriðjan á Íslandi og þjónusta

Við höfum áralanga reynslu af því að þjónusta stóriðjuna á Íslandi og höfum sérhæft okkur í þeim flutningum með viðskiptavinum okkar.

Þurrvara og hráefni til endurvinnslu

Við finnum lausn á þínum flutningi, hvort sem það er sérhæfður flutningur, hitastýrður flutningur eða almennur flutningur á þurrvöru.

Togaralöndun í Kjalarvogi

Samskip bjóða alhliða þjónustu við fjölveiðiskip og frystitogara. Löndun, flutningar og kæli- og frystigeymsla, allt á einum stað auk annarri tengdri þjónustu.

Strandsiglingar

Við eflum strandsiglingar og tengjum landsbyggðina enn betur við flutningsnet okkar með fastri viðkomu á Ísafirði, Sauðárkróki, Akureyri og Reyðarfirði. Með þessu fyrirkomulagi eru fluttar ýmsar þungavörur til og frá höfnum úti á landi.

Með reglulegri þjónustu til lykilhafna um land allt getum við:

  • Stutt vel við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni

  • Tryggt öruggt og hagkvæmt vöruflæði

  • Dregið úr kolefnislosun og umferð stórflutninga á vegum

Við flytjum fjölbreyttan varning sjóleiðina, svo sem þurrvöru og aðrar vörur með langt geymsluþol. Sjóleiðin er bæði hagkvæmur og umhverfisvænn flutningsmáti þar sem sjóflutningar losa mun minna kolefni en samsvarandi flutningar á vegum.

Samskip hafa stundað strandsiglingar síðan árið 2013 og á þeim tíma hefur myndast traust samband við atvinnulífið og samfélög á landsbyggðinni. Með því að efla strandsiglingar enn frekar styða Samskip við atvinnustarfsemi, tryggja reglubundið vöruflæði og bjóða viðskiptavinum hagkvæmar, áreiðanlegar og sjálfbærar lausnir.

Fáðu tilboð í þinn útflutning

Viðskiptavinir veita upplýsingar um vöru, markað og tímaramma, við sjáum um rest. Sérfræðingar okkar á útflutningssviði vinna náið með viðskiptavinum að því að finna lausnir sem eru bæði hagkvæmar og sniðnar að raunverulegum flutningsþörfum.

Við höfum víðtæka reynslu af útflutningi á sjávarútvegsafurðum, allt frá ferskum og frosnum afurðum til saltaðra afurða og skreiðar. Jafnframt höfum við flutt fjölbreyttar vörutegundir úr landi í áratugi, þar á meðal stóriðjuafurðir, hráefni til endurvinnslu og þurrvöru.

Hafðu samband og fáðu raunhæft tilboð frá teyminu sem þekkir útflutning frá Íslandi út í heim.

Útflutningur fyrir íslenskt atvinnulíf

Við búum yfir áratuga reynslu, þekkingu og sérhæfingu í útflutningi fyrir fyrirtæki í íslensku atvinnulífi með ólíkar þarfir.

Sjávarafurðir

Þurrvara og matvara

Hráefni til endurvinnslu

Sjávarútvegur

Starfsfólk Samskipa býr yfir sérþekkingu á útflutningi á sjárvarútvegsafurðum, hvort sem það eru ferskar afurðir, saltaðar, frosnar afurðir eða skreið. Starfsfólk Samskipa leggur áherslu á að þekkja sína viðskiptavini og þeirra þarfir.

Stóriðja

Við hjá Samskipum höfum áralanga reynslu af því að þjónusta stóriðjuna á Íslandi og höfum við sérhæft okkur í þeim flutningum og útbúið sérlausnir fyrir viðskiptavini okkar.

Hráefni til endurvinnslu

Samskip hafa lagt mikið kapp í flutninga á hráefni til endurvinnslu. Við höfum unnið í samstarfi með endurvinnslufyrirtækjum hér á landi með sérlausnir við að flytja út rusl til endurvinnslu hjá viðurkenndum aðilum erlendis.

Þurrvara og matvara

Starfsfólk okkar leggur sig fram við að finna lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. Hvort sem það er sérhæfður flutningur, hitastýrður flutningur eða flutningur á þurrvöru, þá ert þú í góðum höndum hjá starfsfólki Samskipa.

Útflutningsteymi Samskipa

Útflutningssvið Samskipa samanstendur af teymi sérfræðinga sem aðstoða viðskiptavini við að senda verðmæti frá Íslandi og veitir almenna þjónustu sem snýr að útflutningi. Við störfum með það að leiðarljósi að það sé gott og gaman að vera í viðskiptum við Samskip!

Gjaldskrá útflutnings

Verð eru án VSK. Sjá nánar: Incoterms skilmálar.

Gildir frá 1. febrúar 2023

Þurrgámar20 fet40 fet
Dagur 1 til 5FríttFrítt
Dagur 6+€50€70
Frystigámar
Dagur 1 til 5FríttFrítt
Dagur 6+€110€170
Gildir frá 1. september 2024

GjaldaliðurISK (verð í krónum)
Höfuðborgarsvæðið48.053
Hliðgjald – gate in/out27.401
Gámalyfta pr. ferð97.796
Gámur færður milli svæða, pr. ferð56.378

Olíuálag bætist við akstursgjald og reiknast það samkvæmt gjaldskrá Samskipa innanlands.
Gildir frá 1. september 2024

GjaldaliðurISK
Almennt farmbréf16.088
Breytingagjald pr. farmbréf12.686
Útflutningsskýrsla18.302
EUR 110.722
Póstburðargjald – hraðsendingar til útlanda11.837
Póstburðargjald – ábyrgðarpóstur innanlands3.952
Gerð IMO pappíra27.904

*Bóka þarf vöru í flutning fyrir kl. 12 á þriðjudögum.
Endanleg bókunar- og flutningsfyrirmæli þurfa að berast útflutningsdeild Samskipa fyrir hádegi á miðvikudögum í gegnum þjónustuvef eða með tölvupósti á netfangið booking@samskip.com.
GjaldaliðurISK
Bókunargjald6.260á hverja bókun*

*Athugið að bókunargjald er fyrir allar bókanir sem ekki eru gerðar á þjónustuvefnum.
Vinsamlegast hafið samband á inn@samskip.com til að fá aðstoð með þínar bókanir á vefnum.

Gjaldskrá fyrir gámaleigu hjá Samskipum og annara skipalína (SL/SO) sjá nánar hérna.

ÚtskipunISK
Útskipun pr. tonn (lágmarksgjald pr. sendingu 10.523 )11.120
Útskipun pr. rúmmetra (lágmarksgjald pr. sendingu 10.523 )5.672
Útskipun 20 ft129.747
Útskipun 40 ft129.747
Gámur tekinn upp í VES og hífður aftur um borð, pr. gám62.998

Geymslugjöld/gámaleigaUSD/ISK
Geymslugjöld pr. pall pr. dag449 ISK
GámaleigaUSD
Leigugjald fyrir 20 feta þurrgám$120 USD
Leigugjald fyrir 40 feta þurrgám$180 USD
Leigugjald fyrir 40 feta frystigám$480 USD

Þjónustugjöld í frystigeymslumISKAthugasemdir
Meðhöndlunargjald3.527pr. pall
Skoðunarstofa5.214pr. klst
Vara sótt í sýnatöku6.491pr. sýni
Merking á vöru1.708pr. bretti eða 28 kr. pr. miða
Hleðsla/tæming, varan á brettum85.758pr. 40 feta gám
Hleðsla/tæming, laus vara203.204pr. 40 feta gám
Hleðsla/tæming, varan á brettum42.879pr. 20 feta gám
Hleðsla/tæming, laus vara108.656pr. 20 feta gám
Færsla milli gáma, varan á brettum87.490pr. 40 feta gám
Færsla milli gáma, laus vara180.401pr. 40 feta gám
Færsla milli gáma, varan á brettum81.754pr. 20 feta gám
Færsla milli gáma, laus vara98.855pr. 20 feta gám
Vörubretti (1, 2×1)9.506pr. bretti
Sjóbúningsbelgur5.087pr. stk.
Útseld dagvinna9.506pr. tímann
Útseld næturvinna14.188pr. tímann
Svæðisgjald heilgáma (FCL)

(5 dagar eru innifaldir í flutningsgjaldi)

20ft (á dag) ISK40ft (á dag) ISK
Þurrgámar5.00010.0000
Opnir gámar5.00010.000
Fleti10.00010.000
Frystigámar10.00010.000
Öryggisgjald
Gjöld fyrir skemmdan eða týndan búnað v/open top gámaEUR / ISK
Gámur€80,0 EUR
Tonn (lágmarks gjald EUR 8,5)€8,5 EUR
m3(lágmarks gjald EUR 8,5)€7,4 EUR
Farmverndaryfirlýsing pr. tonn (lágmarks gjald 585 ISK)1.271 ISK
Farmverndaryfirlýsing pr. m3 (lágmarks gjald 585 ISK)425 ISK
Hliðgjald – gate in/out27.401 ISK
Segl 20′1.231 ISK
Segl 40′1.428 ISK
TIR kapall 20′€64 EUR
TIR kapall 40′€77 EUR
Þakbogi / stk€127 EUR
Strekkihringur / stk€29 EUR
Viðgerðir, vinnustundir skv. mati hverju sinni€8,5 EUR

Olíugjald (BAF) reiknast af öllum sendingum í inn- og útflutningi og uppfærist það mánaðarlega í samræmi við hækkun/lækkun á olíuverði á Rotterdam markaði. Hér má sjá olíugjald sem nú er í gildi.

Olíu- og umhverfisgjöld

Olíu- og umhverfisgjöld (BAF og LSS) eru uppfærð í byrjun hvers mánaðar.
Smelltu á hnappinn til að skoða gjaldskrána nánar

Upplýsingar um gáma

Hér má finna allar upplýsingar um gáma eins og stærðir, mál og þyngdir, hvort sem það eru þurrgáma, kæli- og frystigáma, fleti eða 20 feta eða 40 feta gáma. Upplýsingarnar hjálpa við að velja réttan gám fyrir vöru og skipuleggja flutning á hagkvæman og öruggan hátt.

Siglingakort

Siglingaáætlun
og flutningsnet okkar

Hér má finna allt um siglingar og áætlun skipa til og frá landinu. Einnig flutningsnetið eftir löndum og rauntímakort með staðsetningu skipa hverju sinni á siglingaleiðum.

Siglingakort
Rauntímakort

VGM – brúttóþyngd

Alþjóðasiglingamálastofnunin (IMO) gerir þær kröfur, að sendendur farms tilgreini brúttóþyngd gáma áður en þeim er lestað um borð í skip. Þetta er gert til auka bæði öryggi skips og farms, starfsfólks við lestun og uppskipun og almennt öryggi á hafi úti.

Sjá nánari upplýsingar hér fyrir neðan ásamt eyðublaði og upplýsingum um hvernig á að fylla út upplýsingarnar á þjónustuvefnum okkar.

Incoterms

Flutningsskilmálar (e. Incoterms) eru skilmálar yfir hvernig vörur eru fluttar til dæmis frá framleiðanda eða seljanda til viðskiptavina. Þeir segja til um hver er ábyrgur fyrir ákveðnum flutningsleiðum og tollaafgreiðslu og eru samkomulag milli seljanda og kaupanda.

Hægt er að lesa nánar um helstu tegundir og lýsingar Incoterms flutningsskilmála hér fyrir neðan.

Vöruhótel Samskipa

Af hverju að velja Samskip?

Við flytjum ekki eingöngu sendingar um vegi og sjó, heldur einnig um skipaskurði og eftir lestarteinum. Með því að nýta ólíka flutningsmáta á sem hagkvæmastan hátt tryggjum við viðskiptavinum okkar sveigjanlegar og áreiðanlegar lausnir sem þæta þörfum þeirra hvar sem er. Fjölþátta flutningslausnir eru snjallari leið til að líta á vöruflutninga og ástæðan er augljós. Þegar markmiðið er að standa ávallt við loforð um hagkvæmni, áreiðanleika og góða þjónustu er mikilvægt að hafa fleiri en valkost í flutningum. Á sama tíma eru fjölþátta flutningslausnir mun umhverfisvænni og hjálpa okkur og viðskiptavinum að draga úr kolefnisfótspori.

Við erum Samskip og hver ferð skiptir máli

Eitt stærsta siglinganet Evrópu

Sjálfbærar og fjölþátta flutningslausnir

Samskip bjóða upp á heildarþjónustu á Íslandi og í Færeyjum, fjölþátta gámaflutningsþjónustu um alla Evrópu, frystiflutninga og flutningsmiðlun um allan heim. Kynntu þér flutningsnetið okkar og siglingaáætlanir.

Hafðu samband við viðskiptastjóra og sérfræðinga okkar í útflutningi

  • Gunnar Kvaran

    Gunnar Kvaran

    Framkvæmdastjóri útflutnings / CCO export

    Framkvæmdastjóri útflutnings / CCO export

  • Þorkell Kristinsson

    Þorkell Kristinsson

    Sölustjóri / Sales Manager

    Sölustjóri / Sales Manager

  • Bjarki Unnarsson

    Bjarki Unnarsson

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

  • Marko Stosic

    Marko Stosic

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

  • Eiríkur Ari Eiríksson

    Eiríkur Ari Eiríksson

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

  • Jón Viðarsson

    Jón Viðarsson

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager

    Viðskiptastjóri / Key Account Manager