Samskip brjóta blað í sjóflutningum af landsbyggðinni: Siglt frá Vestfjörðum og Norðurlandi beint til Bretlands og meginlandsins

Samskip boða þáttaskil í sjóflutningum til og frá Íslandi með nýrri siglingarleið sem er á dagskrá frá og með 18. mars næstkomandi.

Samskip boða þáttaskil í sjóflutningum til og frá Íslandi með nýrri siglingarleið sem er á dagskrá frá og með 18. mars næstkomandi.

Flutningaskip á vegum félagsins fer þá frá Reykjavík til Ísafjarðar, Akureyrar og Reyðarfjarðar og þaðan til Immingham í Bretlandi og Rotterdam í Hollandi með viðkomu í Kollafirði í Færeyjum. Frá Rotterdam heldur skipið heim á leið, kemur til Reykjavíkur sunnudaginn 31. mars og leggur af stað í nýja hringferð daginn eftir, 1. apríl. Viðkomustöðum verður hugsanlega fjölgað í framtíðinni.

„Við höfum fundið fyrir mikilli þörf á beinum siglingum frá Vestfjörðum og Norðurlandi, m.a. á sjávarafurðum inn á helstu markaði í Bretlandi og á meginlandi Evrópu. Við grípum nú tækifærið og endurskipuleggjum leiðakerfi okkar. Með þessum breytingum komum við til móts við óskir og þarfir viðskiptavina félagsins,“ segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.

Útflutningur, innflutningur og flutningur innanlands

Nýja siglingaleiðin býður upp á nýja og afar áhugaverða kosti fyrir íslenska og erlenda viðskiptavini Samskipa:

• Útflutning beint af landsbyggðinni til Bretlands, Færeyja og meginlands Evrópu með tengingum um heim allan.
• Innflutning beint frá Bretlandi og meginlandinu til Reykjavíkur, Ísafjarðar, Akureyrar og Reyðarfjarðar.
• Innanlandsflutning frá Reykjavík til landsbyggðarhafnanna þriggja.
• Innanlandsflutning frá Ísafirði til Akureyrar og Reyðarfjarðar eða frá Akureyri til Reyðarfjarðar.

„Það er mjög jákvætt að Ísafjörður sé aftur orðinn útflutningshöfn og skiptir gríðarlegu máli fyrir þau öflugu útflutningsfyrirtæki sem eru á svæðinu. Ég bind miklar vonir við þetta og tel að samkeppnisstaða fyrirtækja hér í kring styrkist mjög við þetta,“ segir Daníel Jakobsson, bæjarstjóri á Ísafirði.

„Við Norðlendingar fögnum að sjálfsögðu þeim samgöngubótum sem af þessu hljótast. Þetta styrkir stöðu svæðisins til mikilla muna, bæði hvað varðar flutninga til og frá höfuðborgarsvæðinu en við fögnum ekki síður þeirri beinu leið sem nú opnast við viðskiptalönd okkar í Evrópu,“ segir Halla Björk Reynisdóttir, formaður bæjarráðs Akureyrar.

Umhverfisvæn breyting sem hagræðir, sparar og hlífir vegakerfinu

Með þessari breytingu munu útflytjendur og innflytjendur á landsbyggðinni sjá fram á hagræði og fjárhagslegan sparnað með því að komast í beint samband við mikilvægustu markaðssvæði sín í Evrópu. Nýja siglingaleiðin mun draga úr landflutningum. Dýr olía sparast, álagið á vegakerfið minnkar og breytingin því afar jákvæð og umhverfi