Skemmtilegt frumkvöðlaverkefni ! Vindmyllugámar Sidewind styðja við umhverfismarkmið Samskipa
Í apríl hófust fyrstu mælingar tengdar rannsóknarverkefni Sidewind um borð í Helgafelli, flutningaskipi Samskipa. Sidewind er íslenskt frumkvöðlafyrirtæki sem vinnur að þróun umhverfisvænna lausna fyrir flutningaskip og nýtur stuðning Samskipa við verkefnið.
Sidewind stefnir að framleiðslu vindtúrbína sem komið er fyrir í opnum gámum. Vindmyllugámarnir nýta hliðarvind sem annars færi til spillis til framleiðslu rafmagns. Verkefnið fellur afar vel að umhverfis- og sjálfbærnimarkmiðum Samskipa því með notkun tækninnar eru líkur á að draga megi umtalsvert úr notkun jarðefnaeldsneytis í flutningunum og þá um leið útblæstri frá flutningaskipunum.
Sidewind telur að með aðferðinni megi framleiða 5 til 30 prósent af orkuþörf skipa. Frumgerð vindmyllu Sidewind hefur þegar verið prófuð í vindgöngum í Háskólanum í Reykjavík, vindmælingar eru hafnar um borð í Helgafelli og vinna við smíði frumgerðar í fullri stærð sem verður prófuð um borð er að hefjast.
„Okkur finnst frábært að fá svona öflugt fyrirtæki eins og Samskip með okkur í lið. Samstarfið mun efla báða aðila við þróun grænna lausna,“ segir Óskar Svavarsson stofnandi og forstjóri Sidewind.
„Okkur finnst þetta verkefni afar spennandi og hlökkum til samstarfsins með Sidewind. Við erum ávallt með augun opin fyrir tækifærum til að draga úr umhverfisáhrifum starfseminnar og gleður okkur að fá að taka þátt í þróun þessarar nýju tækni,“ segir Þórunn Inga Ingjaldsdóttir, forstöðumaður markaðs- og samskiptadeildar Samskipa.
Skrifað var undir samning um stuðning Samskipa við verkefnið föstudaginn 9. apríl síðastliðinn.
Sidewind ehf. er frumkvöðlafyrirtæki með höfuðstöðvar í Reykjavík. Fyrirtækið er í eigu stofnendanna, Maríu Kristínar Þrastardóttur og Óskars Svavarssonar. Fyrirtækið byggir á hugmynd Óskars um framleiðslu rafmagns með láréttum vindtúrbínum í opnum gámum.
Sidewind er meðal fyrirtækja sem nýverið voru tilnefnd til nýsköpunarverðlauna Samorku. Sjá nánar hér.