Þvottastöð fyrir stærri bíla, rútur og flutningabíla

Bílaþvottastöð Samskipa í Kjalarvogi 7-15 er sérhönnuð og fullkomlega búin sjálfvirk bílaþvottastöð fyrir stóra bíla, rútur, flutningabíla, vörubíla og eftirvagna. Þessi öfluga og afkastamiklastöð er sú eina sinnar tegundar á landinu og er fullkomin lausn fyrir atvinnubíla sem þurfa reglulegan og skilvirkan þvott.

Ökumenn stjórna þvotti með snertiskjá þar sem hægt er að velja á milli margvíslegra möguleika, bæði hvað varðar þvottategund og sápumagn. Þvottastöðin er alsjálfvirk og notar sérblönduð efni fyrir bílaþvottastöðvar sem eru mildari fyrir umhverfið og tryggir því góð þrif án þess að ganga á náttúruna.

24/7 opnun
Stöðin er opin alla daga ársins allan sólarhringinn fyrir bílstjóra, fyrirtæki og einstaklinga, innan og utan Samskipa og því hægt að nota stöðina þegar best hentar.

Aðgengi að stöðinni:
Hafa þarf samband við Inga S. Ólafsson í s. 458-8658 eða tölvupósti: thvottur@samskip.com. Þá er stofnaður aðgangur viðskiptavinar (rafræn viðskipti). Bílstjórar nota stöðina eftir hentugleika og skrá þvott á viðskiptanúmer (greiðsla fer fram mánaðarlega, engin þörf á staðgreiðslu á staðnum). Hentar vel fyrir fyrirtæki með stóran bílaflota með marga bílstjóra þar sem hvert tæki getur haft sitt aðgöngukort. Rafræn kvittun er í boði að þvotti loknum.

Helstu kostir þvottastöðvarinnar:

  • Númeralestur tækis við aðkomu að stöðinni
  • Hver bifreið/bílstjóri með sitt aðgöngukort
  • Sjálvirkur og/eða handvirkur þvottur í boði
  • Hægt að velja hraðþvott þar sem ökumaður þarf ekki að yfirgefa bílinn
  • Hliðar- og undirvagnsþvottur
  • Handbyssur með vatnsháþrýstiþvotti, olíu- og tjöruhreinsi og sápukvoðu